Korpubikarinn í samvinnu við FirstWater verður leikinn á Korpúlfsstaðavelli dagana 29.-31. maí næstkomandi.
Mótið er annað mótið á GSÍ mótaröðinni í ár þar sem bestu kylfingar landsins etja kappi og spila um Korpubikarinn. Skráning er hafin, en síðasti skráningardagur er mánudagurinn 25. maí kl. 23:59.
Mótahald fer fram á Korpúlfsstaðavelli á lykkjunum Sjórinn/Áin. Höggleikur í karla og
kvenna flokki þar sem leiknar eru 54 holur, 18 holur á föstudegi, 18 holur á
laugardegi og 18 holur á sunnudegi.
Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru
með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.
Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl.15:00 á miðvikdeginum fyrir mót. Á fyrsta
keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori.
Ræst verður út alla daga frá kl. 08:00.
Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 132 en að lágmarki 33 kylfingur fær þátttökurétt í
hvorum flokki. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5.
Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar á fyrsta teig og æfingaboltar í Básum alla
keppnisdaga. Að leik loknum verður boðið upp á Klúbbhúsborgara og drykk alla
keppnisdagana í samvinnu við Klúbbhús Korpu.
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við
Golfklúbb Reykjavíkur á netfangið grskrifstofa@grgolf.is til að panta rástíma. Reglur
um æfingahringi er að finna í klúbbhúsinu.



