Hilmar Snær Örvarsson, GKG, endaði jafn í fjórða sæti á G4D Open mótinu sem fram fór í Wales dagana 14.-16. maí. Þetta var í fjórða skiptið sem mótið var haldið, en það er eitt stærsta og virtasta mót heims fyrir kylfinga með fötlun. G4D Open er haldið í samstarfi við The R&A, DP World Tour og EDGA.

Alls tóku 80 kylfingar frá 25 löndum þátt í mótinu, en keppt er í níu mismunandi flokkum út frá fötlunarflokkunum Standing, Intellectual, Visual og Sitting. Hilmar leikur í flokknum Standing 2, en hann er með gervifót fyrir neðan hné á vinstri fæti.
Hilmar lék hringina þrjá á 79-76-74 höggum og lauk leik á nítján höggum yfir pari í heildina. Hann sótti sjö fugla á hringjunum þremur, og varð fjórum höggum frá þriðja sætinu.

Englendingurinn Kipp Popert vann flokkinn á þrettán höggum yfir pari, sex höggum á undan Hilmari. Það er því ljóst að Hilmar á heima á meðal þeirra bestu í heimi í sínum flokki, og verður spennandi að fylgjast með hans næstu verkefnum.



