Reykjanesmót GS og GSG hefst föstudaginn 15. maí á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur eða þrír keppnishringir á þremur dögum. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis.
Í karlaflokki eru 73 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.36, lægsta forgjöfin er +5.2 og hæsta forgjöfin er 5.4. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf.
Tómas Eiríksson Hjaltested, Axel Bóasson og Kristófer Orri Þórðarson eru þrír forgjafarlægstu kylfingar karlaflokksins. Tómas er ríkjandi stigameistari mótaraðarinnar og stefnir að því að sækja annan titil í sumar. Í dag var gefið út viðtal við Tómas á Vísi, þar sem farið er yfir sumarið og háskólagolfið.

Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 2.2, lægsta forgjöfin er +3.3 en sú hæsta er 8.1.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Eva Kristinsdóttir eru forgjafarlægstu kylfingar flokksins. Perla Sól varð Íslandsmeistari í golfi árið 2022 og vann Guðfinnubikarinn fyrir lægsta skor áhugakylfings á Íslandsmótinu í fyrra. Eva Kristinsdóttir kemur af krafti inn í tímabilið, en hún varð Landsmeistari í golfhermum í byrjun maí.
Keppendur eru alls 91, og koma þeir frá 14 klúbbum víðsvegar af landinu.
GR er með flesta keppendur eða 21 alls, og GKG sendir 19 í mótið. Sex klúbbar eru með keppendur í kvenna- og karlaflokki.



