Ríkjandi Íslandsmeistari karla í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson, tryggði sér sæti í lokaúrtökumóti U.S. Open eftir öflugan hring í undankeppni sem fram fór í gær. Leikið var á Berkshire Hills vellinum í Pittsfield. Dagbjartur lék hringinn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari, og endaði jafn í öðru sæti. Efstu fjórir kylfingarnir tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt.
Dagbjartur hóf hringinn á seinni níu holunum og byrjaði af krafti. Hann fékk fugla á tvær fyrstu holur sínar og var kominn fjóra undir par eftir örn á elleftu holunni (önnur hola vallarins). Tvö töpuð högg á síðustu sjö holunum skiptu litlu máli, og Dagbjartur kominn skrefi nær U.S. Open risamótinu sem hefst 18. júní.

Lokaúrtökumót U.S. Open fara fram dagana 18. maí, 25. maí og 8. júní þar sem kylfingar leika 36 holur á einum degi um sæti í sjálfu U.S. Open risamótinu. Þar mætast margir af sterkustu kylfingum heims sem ekki hafa þegar tryggt sér þátttökurétt.
Þetta er annað árið í röð sem Dagbjartur leikur í lokaúrtökumótinu. Íslandsmeistarinn náði þangað á síðasta ári og lék þar meðal annars með risamótsmeistaranum Padraig Harrington og Svíanum Alex Noren. Þá var hann í góðri stöðu eftir fyrri hringinn en endaði að lokum jafn í 38. sæti.



