GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Man in dark sportswear standing with a golf club under an archway that says THE G4D OPEN, Celtic Manor banners visible in a field event setting
Hilmar Snær Örvarsson
Auglýsing

Hilmar Snær Örvarsson, GKG, hefur í dag leik á G4D Open mótinu sem fram fer á hinum glæsilega Celtic Manor Resort í Wales dagana 14.-16. maí. Þetta er fjórða skiptið sem mótið fer fram, en það er eitt stærsta og virtasta mót heims fyrir kylfinga með fötlun. G4D Open er haldið í samstarfi við The R&A, DP World Tour og EDGA.

Alls taka 80 kylfingar frá 25 löndum þátt í mótinu, en keppt er í níu mismunandi flokkum út frá fötlunarflokkunum Standing, Intellectual, Visual og Sitting. Hilmar leikur í flokknum Standing 2, en hann er með gervifót fyrir neðan hné á vinstri fæti. Leikinn er 54 holu höggleikur og verður niðurskurður eftir tvo keppnisdaga í fyrsta sinn í sögu mótsins.

Mótið í ár fer fram á Celtic Manor Resort, en síðustu þrjú árin var leikið á Woburn Golf Club. Keppt er á Roman Road vellinum sem hannaður var af hinum þekkta golfvallahönnuði Robert Trent Jones Sr.

Völlurinn hefur áður hýst Wales Open á DP World Tour og Wales Senior Open, en Celtic Manor svæðið er hvað þekktast fyrir að hafa haldið Ryder Cup árið 2010. Fyrir mótið hefur verið farið í umfangsmiklar breytingar á vellinum til að bæta aðgengi og tryggja bestu mögulegu aðstæður fyrir alla keppendur.

Hilmar mætti til Wales fyrr í vikunni og lék æfingahring á Roman Road vellinum á miðvikudag. Hann segir völlinn frábæran og umfangsmikið landslag einkenna svæðið. Æfingahringurinn gekk vel og spenna ríkir fyrir mótinu.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

G4D Open hefur vaxið hratt undanfarin ár og er orðið eitt sýnilegasta mót heims fyrir kylfinga með fötlun. Mótið fær mikla umfjöllun frá bæði The R&A og DP World Tour og hefur markmið þess frá upphafi verið að sýna fram á hversu aðgengileg og fjölbreytt golfíþróttin getur verið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ