GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Golfer celebrates with raised arms on a grassy course as a cheering crowd looks on, with event branding and logos along the bottom edge.
GSÍ mótaröðin hefst 15. maí
Auglýsing

Í dag, þriðjudaginn 12. maí, er síðasti skráningardagur í Reykjanesmót GS og GSG sem fram fer dagana 15.-17. maí. Skráningu lýkur klukkan 23:59 í kvöld.

Leikinn er 54 holu höggleikur í flokki karla og kvenna sem dreifist á þrjá keppnisdaga. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis. Eftir annan keppnisdag verður niðurskurður þar sem efstu 70% keppenda í hvorum flokki komast áfram.

Hámarksfjöldi keppenda er 144 og er mótið opið bæði áhuga- og atvinnukylfingum. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5. Ef skráningar fara yfir hámarksfjölda ræður forgjöf hvaða keppendur komast inn í mótið.

Mótsgjald er 17.900 krónur í bæði karla- og kvennaflokki.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum. Sigurvegarar fá 140.000 krónur, annað sæti hlýtur 100.000 krónur og þriðja sæti 60.000 krónur.

Hér er hægt að skrá sig í mótið


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ