Seinni undankeppni Landsmótsins í golfhermum lauk á mánudaginn síðasta og nú er komið í ljós hvaða keppendur fara í úrslitakeppnina og berjast um Landsmeistaratitilinn. Úrslitin fara fram í Íþróttamiðstöð GKG laugardaginn 2. maí, og verður seinni hringur mótsins sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3, en útsending hefst kl. 19:00.
Hér má sjá úrslitin úr 2. umferð:
Aldrei hafa fleiri keppendur tekið þátt, en 268 kylfingar hófu leik í mótinu, sem jafnar metið frá árinu 2025. Er þetta í samræmi við þær auknu vinsældir sem golfhermar hafa skapað sér á undanförnum árum, enda frábær leið til að iðka og æfa golf yfir vetrartímann.
Í seinni undankeppninni léku þeir kylfingar sem voru með besta árangurinn í fyrri undankeppninni, alls 19 í kvennaflokki og 52 í karlaflokki. Leikið var á Korpúlfsstaðavelli, sem einnig verður spilaður í úrslitum mótsins.
Hart var barist um sæti í úrslitunum, en efstu 12 kylfingarnir úr hvorum flokknum komust áfram.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, lék á besta skori kvenna í annarri umferð, en hún lauk leik á ellefu undir pari. Hér að neðan má sjá þá kylfinga sem leika til úrslita.
Sæti Nafn H1 H2 Samtals 1 Heiðrún Anna Hlynsdóttir -11 68 65 133 T2 Eva Kristins -10 68 66 134 T2 Pamela Ósk Hjaltadóttir -10 64 70 134 4 Katrin Embla Hlynsdóttir -9 66 69 135 T5 Bryndís Eva -7 69 68 137 T5 Erla Rún Kaaber -7 69 68 137 T5 Ragga Kristinsdottir -7 66 71 137 8 Guðrún Birna Snæþórsdóttir E 76 68 144 T9 Eva Matthíasdóttir +3 73 74 147 T9 Sigurást Júlía +3 72 75 147 11 Erla Marý S. +6 75 75 150 12 Hekla Daða +8 79 73 152
Axel Bóasson lék best alla í karlaflokki, en hann lauk leik á sautján höggum undir pari. Frábæran fyrsta hring Axels verður erfitt að bæta, en hann lék á 60 höggum, ellefu undir pari vallarins. Hér má sjá þá karla sem leika til úrslita.
Sæti Nafn H1 H2 Samtals 1 Axel Bóasson -17 60 65 125 2 Sigurður Arnar Garðarsson -15 65 62 127 T3 Arnar Dadi -13 64 65 129 T3 Aron Emil -13 64 65 129 T3 Valur Snær Guðmundsson -13 62 67 129 T6 Arnór Tjörvi -11 63 68 131 T6 Guðlaugur Þór -11 63 68 131 T6 Kristofer Orri -11 65 66 131 9 Guðjón Frans Halldórsson -10 65 67 132 T10 Guðmundur Snær Eliasson -9 69 64 133 T10 Ólafur Marel Árnason -9 70 63 133 T10 Skúli Ágústsson -9 63 70 133
Skor úr undankeppnum gilda ekki í úrslitum, þannig allir hefja leik á jöfnum grundvelli. Þar verða leiknar 36 holur, og sigurvegararnir krýndir Landsmeistarar í golfhermum. Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar
- sæti: 130.000 kr.
- sæti: 50.000 kr.
- sæti: 30.000 kr.
