GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfhátíðin á Flúðum fer fram dagana 11.-12. júní 2026. Viðburðurinn er hluti af mótahaldi GSÍ fyrir kylfinga 14 ára og yngri (Golf 14), en mikil gleði ríkti á Golfhátíðinni á Akranesi síðasta sumar.

Markmiðið er að fá sem flesta kylfinga sem æfa golf á Íslandi á aldrinum 11-14 ára til að taka þátt í Golfhátíðinni. Búast má við kylfingum hvaðanæva af landinu en Golfhátíðin hentar öllum getustigum. 

Golfhátíðin verður í anda fótboltamótanna. Kylfingar gista 1 nótt í Íþróttahúsinu á Flúðum. Kylfingar leika ekki hefðbundna 18 holu golfhringi heldur spreyta sig á margvíslegum, skemmtilegum golfþrautum á Selsvelli. Vellinum verður skipt upp í margar stöðvar sem verður krefjandi og skemmtilegt að leysa og ólík áskorun frá fimm tíma golfhring. Þess utan verður skemmtileg dagskrá utan golfvallarins t.d. sund, frisbígolf o.fl. 

Þjálfarar og afrekskylfingar golfklúbba halda utan um kylfingana sína en starfsfólk GSÍ ásamt öðrum þjálfurum, atvinnukylfingum og landsliðskylfingum sjá um golfþrautirnar. Margir af þekktustu kylfingum Íslands munu taka þátt í Golfhátíðinni og veita ungu kylfingunum hvatningu og innblástur. 

Verð í Golfhátíðina er 19.900 kr og er þátttökugjald greitt við skráningu.

Skráning á hátíðina og nánari upplýsingar hér.

Poster promoting GolfHátíðin í Flúðum with 'GOLF14' logo, kids celebrating, and event details (Selsvollur, 11–12 júní, 19.900 kr) on green/white design.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ