GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, er í 2. sæti fyrir lokahringinn á Vasteras Open mótinu í Svíþjóð. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er sú næststerkasta á meðal atvinnukylfinga í Evrópu.

Hægt er að skoða skor mótsins hér

Leikið er á Skerike Golfklubb vellinum í Svíþjóð, en mótið er það áttunda á tímabilinu hjá Ragnhildi. Hún hefur leikið frábært golf undanfarnar vikur, en hún hafnaði m.a. í 2. sæti á Swedish Strokeplay Championship mótinu í síðustu viku. Með því jafnaði hún besta árangur íslensks kylfings á mótaröðinni frá upphafi. Hún situr í 13. sæti stigalistans, en stefnir enn hærra.

Ragga gerði sér lítið fyrir og lék best allra kylfinga á fyrsta keppnisdegi. Hún lauk leik á 65 höggum, sjö undir pari vallarins. Eftir tvo fugla og einn skolla á fyrri níu holunum setti Ragga í fluggír. Hún fékk fimm fugla, örn og einn skolla á seinni níu holunum, sem hún lék sex undir pari. Hún púttaði tíu sinnum á seinni níu, sem bendir til þess að pútterinn hafi verið ansi heitur.

Fyrri hringur Röggu

Í viðtali við LET Access sagði Ragga að hringurinn hafi reynst henni mjög þægilegur. Hún hafi verið að koma sér á góðan stað af teig og nokkur góð pútt hafi dottið. Hún kom einnig inná það sjálfstraust sem árangurinn í síðustu viku hafði gefið sér, og mikilvægi þess að líða vel á flötunum.

Annan hringinn lék Ragga á tveimur undir pari. Hún hóf leik á 10. holu og fór fremur hægt af stað, með þrjá skolla á fyrstu fimm holum sínum. Vindurinn var töluvert meiri í dag og tók nokkrar holur að aðlagast. Seinni hluta hringins lék Ragga frábærlega og fékk m.a. þrjá fugla á síðustu fjórum holum sínum. Hún situr því í 2. sæti mótsins fyrir lokahringinn, tveimur höggum á eftir hinni dönsku Amalie Leth-Nissen.

Annar hringur Röggu

Andrea Bergsdóttir er einnig á meðal keppenda í mótinu. Hún hefur leikið hringi sína á 71 og 74 höggum og situr í 41. sæti mótsins. Andrea hefur leikið frábærlega á tímabilinu og er í 10. sæti stigalistans.

Það verður spennandi að fylgjast með lokahring mótsins á morgun. Ragnhildur hefur leik kl. 09:39 að staðartíma og Andrea kl. 08:55.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ