Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Keili, er á meðal efstu kylfinga eftir annan hring sinn á Amundi German Masters mótinu. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna (Ladies European Tour), en þetta er sjötta mót hennar á tímabilinu.
Hér má fylgjast með skori mótsins
Leiknir eru fjórir hringir á Green Eagle Golf Course svæðinu nærri Hamburg. Niðurskurður er eftir hring dagsins, og komast 65 efstu kylfingarnir áfram.
Guðrún hefur leikið báða hringi sína á 71 höggi, tveimur undir pari, og er jöfn í 6. sæti mótsins.


Hún hefur fengið sjö fugla, einungis þrjá skolla og er í góðum málum fyrir seinni helming mótsins.
Kylfingar eru enn að leika sinn annan hring. Ellinor Sudow situr í efsta sæti mótsins sem stendur, á sjö höggum undir pari. Fjórar eru jafnar í öðru sæti á fimm höggum undir pari, og er Guðrún því ekki langt undan.
Við fylgjumst spennt með lokahringjum mótsins og sendum Guðrúnu Brá góðar kveðjur.