Andrea Bergsdóttir lauk leik í þriðja sæti á Montauban Ladies Open mótinu í Frakklandi. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er næststerkasta atvinnumótaröð Evrópu.
Með þessum árangri jafnar Andrea besta árangur Íslendings á LET Access mótaröðinni. Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í þriðja sæti á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open mótinu árið 2016.
Yfirferð á móti
Andrea var í fínum málum eftir fyrstu tvo hringi mótsins. Hún lék fyrsta hringinn á 70 höggum og þann annan á 73 höggum. Hún var því einn undir pari í heildina fyrir lokahring mótsins.
Á þriðja og síðasta hringnum var hún á pari vallarins eftir tólf holur. Síðustu sex holurnar lék hún fimm undir pari og flaug upp stöðutöfluna. Á tímabili var hún efst í mótinu en Reina Fujikawa og Amalie Leth-Nissen enduðu höggi á undan henni, og þurfti bráðabana til að fá sigurvegara í mótið. Þrjátíu högg á seinni níu holunum og Andrea heldur áfram sínu góða gengi á mótaröðinni.

Með árangrinum fær Andrea 3.375 evrur, eða tæpa hálfa milljón króna, í verðlaunafé og 230 dýrmæt stig á stigalista LET Access mótaraðarinnar.
Andrea endaði í fjórða sæti á Santander Golf Tour mótinu í lok maí og hefur flogið upp stigalistann á stuttum tíma.
Fyrir tveimur mótum var Andrea í 55. sæti listans, en eftir tvær góðar helgar í röð er hún komin upp í það níunda! Efstu sjö kylfingarnir í lok mótaraðarinnar fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðinni, og er því til mikils að vinna. Aðspurð sagðist Andrea stefna að því að enda í einu af sjö efstu sætum stigalistans, og er hún í góðri stöðu til að ná þessu markmiði sínu.
Næsta mót á LET Access mótaröðinni er Amundi Czech Ladies Challenge, sem fer fram dagana 13.-15. júní. Andrea er ekki skráð í mótið en Ragnhildur Kristinsdóttir verður á meðal keppenda.