GSÍ fjölskyldan
Embla og Guðjón eftir sigurinn
Auglýsing

Guðjón Frans Halldórsson, GKG, og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, stóðu uppi sem sigurvegarar í Unglingamótaröðinni þessa helgina. Matthías Jörvi Jensson, GKG, og Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM, sigruðu Golf 14 mótið í flokki 14 ára og yngri.

Þriðja mót Unglingamótaraðarinnar og annað mót Golf 14 fóru fram um helgina á Leirdalsvelli og í Mýrinni, og var frábær þátttaka í mótið. 134 keppendur þátt í mótinu sem haldið var í fimmta sinn hjá GKG.

Skoða öll úrslit í Unglingamótaröð

Skoða öll úrslit í Golf 14 – Leirdalnum

Skoða öll úrslit í Golf 14 – Mýrinni

Unglingamótaröðin

Mótið fór fram dagana 5.-7. júní í flokki 15-18 ára og leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar.

Staðan eftir fyrstu tvo keppnisdaga

Nettó mótið hófst þann 5. júní á Leirdalsvelli, þegar keppendur Unglingamótaraðarinnar léku sinn fyrsta hring. Aðstæður hafa á tímum verið krefjandi, en hörð keppni er í bæði drengja- og stúlknaflokki.

Í drengjaflokki leiðir Guðjón Frans Halldórsson mótið með átta höggum. Hann lék fyrsta hring mótsins á 69 höggum, best allra. Því fylgdi hann svo með hring upp á 73 högg á öðrum keppnisdegi. Guðjón er með flesta fugla allra keppenda og besta meðalskorið á bæði par 4 og par 5 holum.

Guðjón stefnir á sinn annan sigur á mótaröðinni í sumar, en hann sigraði mótið á Akranesi og varð annar í mótinu á Sandgerði.

Skor Guðjóns

Á eftir Guðjóni er þéttur pakki kylfinga. Á milli annars og áttunda sætis eru einungis þrjú högg, og munu margir vilja sækja sér verðlaun á mótinu.

Hjalti Jóhannsson, GK, er jafn í 2. sæti, en hann átti besta hringinn á öðrum keppnisdegi. Þá lék hann á 69 höggum, tvo undir pari vallarins. Einungis einn kylfingur bætti sig um fleiri högg á milli hringja, en Hjalti lék tólf höggum betur á föstudeginum.

Í stúlknaflokki 15-18 ára er Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, efst fyrir lokahringinn. Hún hefur leikið sína hringi á 77-75 höggum

Höggi á eftir Pamelu er Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG. Hún lék annan hringinn best allra í kvennaflokki, og kom í hús á 74 höggum.

Jafnar í 3. sæti eru Elísabet Sunna Scheving, GKG, og Lovísa Huld Gunnarsdóttir, GSE. Þær hafa báðar leikið báða hringi sína á 79 höggum.

Úrslit Unglingamótaraðarinnar

Í drengjaflokki 15-18 ára sigraði Guðjón Frans Halldórsson, en hann leiddi mótið frá fyrsta degi.

Hann lauk leik á fimm yfir pari í heildina, en þetta er annar sigur Guðjóns á tímabilinu. Guðjón varð með sigrinum fyrsti kylfingurinn til að sigra mótið tvisvar sinnum, en hann vann Nettó mótið einnig í fyrra.

Sigurskorið

Hjalti Jóhannsson, GK, varð annar. Hann lék best allra á öðrum og þriðja keppnisdegi mótsins, en fyrsti hringurinn kom í veg fyrir sigur hjá kylfingnum efnilega.

Sebastian Blær Ómarsson úr GR náði draumahögginu á öðrum keppnisdegi þegar hann fór holu í höggi á 13. braut Leirdalsvallar!

1. Guðjón Frans Halldórsson GKG 218
2. Hjalti Jóhannsson GK 221
3. Hjalti Kristján Hjaltason GM 223

Besti árangur í flokki 15-16 ára pilta
Hjalti Kristján Hjaltason GM 223

Besti árangur í flokki 17-18 ára pilta
Guðjón Frans Halldórsson GKG 218

Hjalti Guðjón og Hjalti

Í stúlknaflokki 15-18 ára var það Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG, sem sigraði mótið eftir hringi upp á 79-74-75. Mikil spenna var um sigurinn í flokknum, en Embla og Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, voru jafnar þegar einungis tvær holur voru eftir. Frábær fugl á 17. holunni skilaði Emblu sigrinum. Þetta er fyrsti sigur Emblu, en hún er aðeins 16 ára.

Sigurskorið

Pamela Ósk, varð líkt og fyrr kom fram, önnur í mótinu. Hún lék stöðugt og gott golf í mótinu og endaði jöfn Emblu með flest pör í kvennaflokki, alls 33.

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, endaði fjórða. Hún lék par 3 holurnar einstaklega vel um helgina. Þrír af hennar fjórum fuglum í mótinu komu á par 3 holum, og var hún með flesta tvista allra kylfinga.

1. Embla Hrönn Hallsdóttir GKG  228
2. Pamela Ósk Hjaltadóttir GM  229
3. Elísabet Sunna Scheving GKG  231

Besti árangur í flokki 15-16 ára stúlkna
Embla Hrönn Hallsdóttir GKG  228

Besti árangur í flokki 17-18 ára stúlkna
Pamela Ósk Hjaltadóttir GM  229

Elísabet Embla og Pamela

Golf 14

Mótið fór fram dagana 6.-7. júní í nokkrum flokkum.

  • 14 ára og yngri 36 holur – Leirdalur
  • 14 ára og yngri 9 holur – Mýrin
  • 12 ára og yngri 9 holur – Mýrin
  • 10 ára og yngri 9 holur – Mýrin

Staðan eftir fyrsta keppnisdag – Leirdalur

Í þessu móti eru leiknir tveir 18 holu hringir á Leirdalsvelli og keppt í flokki 14 ára og yngri. Í drengjaflokki var það Emil Máni Lúðvíksson, GKG, sem lék best á fyrri keppnisdegi, 77 höggum. Höggi á eftir honum var Matthías Jörvi Jensson, GKG, sem lék mjög gott golf eftir tvo tvöfalda skolla á fyrstu þremur holunum.

Í stúlknaflokki er Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM, sem leiðir mótið eftir hring upp á 90 högg. Hún endaði hringinn af miklum krafti, og fékk þrjá fugla á holum 14-17.

Önnur er Hrafnhildur Sigurðardóttir, GR, en hún lék hringinn á 95 höggum.

Úrslit Nettó Golf 14 – Leirdalur

Í stúlknaflokki 14 ára og yngri var það Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM, sem hélt forystu sinni eftir fyrri hringinn. Hún lék seinni hringinn frábærlega, kom í hús á 81 höggi og sigraði með þrettán höggum. Aftur lék Eiríka seinni níu holurnar mjög vel, en hún fór þær á 37 höggum.

Hrafnhildur Sigurðardóttir, GR hélt einnig sínu sæti og endaði önnur í mótinu.

1. Eiríka Malaika Stefánsdóttir GM 171
2. Hrafnhildur Sigurðardóttir GR 184
3. Elísabet Þóra Ólafsdóttir NK 187

Elísabet Eiríka og Hrafnhildur

Í drengjaflokknum var mikil spenna, og þurfti að leika bráðabana til að úrskurða sigurvegara. Eftir fimmtán holu leik var Matthías Jörvi Jensson fimm höggum frá efsta manni. Hann lék síðustu þrjár holurnar frábærlega, einn undir pari, og náði með því að knýja fram bráðabana um sigurinn. Andstæðingurinn var klúbbfélagi hans í GKG, Emil Máni Lúðvíksson, sem leiddi mótið eftir fyrsta hring. Matthías sigraði bráðabanann og stóð uppi sem sigurvegari mótsins.

1. Matthías Jörvi Jensson GKG 155
2. Emil Máni Lúðvíksson GKG 155
3. Emil Darri Birgisson GM 158

Emil Matthías og Emil

Úrslit Nettó Golf 14 – Mýrin

Í Mýrinni er keppt í 10, 12 og 14 ára aldursflokkum drengja og stúlkna. Mótið er 9 holur og var leikið í heild sinni á öðrum keppnisdegi mótsins. 45 keppendur léku í fínu “gluggaveðri”. En vindurinn spillti ekki leikgleðinni hjá þessum ungu upprennandi kylfingum.

Aðalmarkmið mótsins er fyrst og fremst hugsað að vera vettvangur fyrir unga kylfinga til að taka sín fyrstu skref í keppnisgolfi.

Hér eru úrslit mótsins.

10 ára og yngri drengir

  1. sæti Ísak Hrafn Jónasson GR
  2. sæti Alexander Hrafn Kristinsson GKG
  3. sæti Daníel Tristan Sigurlínarson GM
Daníel Ísak og Alexander

10 ára og yngri stúlkur

  1. sæti Edda María Hjaltadóttir GM
  2. sæti Ása Margrét Þórsdóttir GK
  3. sæti Eyrún Ása Th. Henriksdóttir GOS
Manúela Edda María Eyrún Ása Ása Margrét 

12 ára og yngri drengir

  1. sæti Sigurður Markús Sigurðarson GR
  2. sæti Júlí Róbert Helgason NK
  3. sæti Felix Leó Helgason NK
Júlí Róbert Sigurður Markús Felix Leó

12 ára og yngri stúlkur

  1. sæti Embla Dröfn Hákonardóttir GKG
  2. sæti Katrín Emilía Ingvarsdóttir GO
  3. sæti Edda Friðriksdóttir GO
Edda Embla Dröfn Katrín Emilía

14 ára og yngri drengir

  1. sæti Bjarki Freyr Jónsson GK

Við þökkum GKG og þeirra fólki fyrir frábært mót!

Næstu mót þessara kylfinga eru Íslandsmót golfklúbba sem fara fram víðs vegar um landið í lok júní – sjáumst þar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ