Veigar Heiðarsson, GA, Logi Sigurðsson, GS, og Markús Marelsson taka þátt í hinu virta alþjóðlega áhugamannamóti St. Andrews Links Trophy, sem fram fer dagana 6.-8. júní.
Leikið er á hinum sögufræga Old Course á St. Andrews og einnig á Jubilee Course sem er á sama svæði. Old Course völlurinn er elsti og virtasti völlur golfíþróttarinnar, en á honum hefur golf verið leikið í yfir 600 ár. Á Old Course hefur opna breska meistaramótið verið haldið oftar en á nokkrum öðrum velli, en hann er af mörgum talinn vera réttmætt heimili golfíþróttarinnar.

Alls eru 144 kylfingar sem hefja keppni. Fyrirkomulag mótsins er 72 holu höggleikur. Keppendur leika tvo hringi á fyrstu tveimur dögum mótsins, fyrst á Jubilee Course og síðan á Old Course, en eftir annan daginn er niðurskurður. Aðeins 40 efstu kylfingarnir komast áfram í lokahringina tvo sem leiknir eru á Old Course á sunnudeginum.
Margir þekktir kylfingar hafa keppt eða sigrað í mótinu og má þar nefna; Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Padraig Harrington, Justin Rose, Rory McIlroy og Francesco Molinari.

Rástímar:
Veigar Heiðarsson fer af stað kl. 07:20 að íslenskum tíma. Hann leikur með Emil Elkjaer Petersen frá Danmörku og Conor Gough frá Englandi.
Markús Marelsson hefur leik kl. 07:40 og er í holli með Jack Bigham frá Englandi og Lev Grinberg frá Úkraínu.
Logi Sigurðsson leggur síðastur af stað, kl. 10:30 að íslenskum tíma, og leikur með Ástralanum Coby Carruthers og Íranum Luke O’Neill.
Það verður áhugavert að fylgjast með gengi íslensku kylfinganna í þessu sterka móti.