Annað mót sumarsins í GSÍ mótaröðinni fer fram á Þorláksvelli í Þorlákshöfn dagana 24.-25. maí. Skráningarfrestur er til kl. 23:59, mánudaginn 19. maí, og hámarksfjöldi keppenda er 42.
Breytingar hafa orðið á fyrirkomulagi vormótanna. Öll mót á GSÍ mótaröðinni munu telja til stigalista mótaraðarinnar með mismikið vægi. Mótaröðin samanstendur af tveimur smærri mótum og fjórum stórmótum, og er stigagjöf háttað eftir því. Vormót telja ekki til heimslista áhugamanna.
Í mótinu munu keppendur leika 36 holur án forgjafar í breyttri punktakeppni, bæði í liðakeppni og einstaklingskeppni. Leiknar eru 18 holur á laugardegi í ProAm móti og 18 holur á sunnudegi. Stigagjöf er eftirfarandi:
- Albatross: 8 punktar
- Örn: 5 punktar
- Fugl: 2 punktar
- Par: 0 punktar
- Skolli: -1 punktur
- Tvöfaldur skolli eða verra: -3 punktar
Mótsgjald er 15.000kr sem rennur óskipt í verðlaunafé og hljóta sigurvegarar mótsins 140.000kr. Þeir kylfingar sem enda á meðal 25% efstu kylfinganna hljóta einnig verðlaunafé.
Nánari upplýsingar, skráningu og keppnisskilmála má finna í hlekk hér að neðan.