Dómaranefnd GSÍ stóð nýverið fyrir héraðsdómaranámskeiði og var þátttakan mjög góð. Alls skráðu 77 einstaklingar sig á námskeiðið.
Fyrirlestrarnir voru alls fjórir og voru þeir sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt var að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.
Að meðaltali sóttu 30 manns fyrirlestrana, enn fleiri skoðuðu upptökur af þeim. Alls tóku 25 manns prófið og stóðust 20 þeirra prófið. Þessir 20 nýju héraðsdómarar koma frá 11 mismundandi klúbbum víðsvegar af landinu.
Prófið var rafrænt og tekið á netinu og engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.