Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, hefur leik fimmtudaginn 6. maí á Dimension Data Pro-Am mótinu sem fram fer á Fancourt Golf Estate í Suður-Afríku.

Þetta er þriðja mótið sem Haraldur Franklín keppir á í þessari törn á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Mótaröðin er sú næst sterkast hjá atvinnukylfingum í Evrópu.

Eins og áður segir er þetta þriðja mótið hjá Haraldi Franklín. Hann hefur ekki komist í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum.

GR-ingurinn hefur leik kl. 6:35 að íslenskum tíma á fimmtudaginn.

Staðan verður uppfærð hér:

Mótaröðin flytur sig um set til Svíþjóðar þar sem að tvö mót fara fram 13.-16. maí og 19.-22. maí. Þar mun Guðmundur Ágústu Kristjánsson mæta til leiks en hann er líkt og Haraldur Franklín með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili. Bjarki Pétursson, GKG, og Andri Þór Björnsson, GR, eru einnig með keppnisrétt á þessari mótaröð.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ