Auglýsing

Nettó mótið sem er hluti af Unglingamótaröð GSÍ fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 1.-3. ágúst. Mótið átti upphaflega að fara fram 8.-10. júní en var frestað þar sem sumarið kom afskaplega seint í bæinn.

Alls tóku 120 keppendur þátt sem var haldið í fjórða sinn hjá GKG.

Heildarúrslit mótsins og skor má sjá hér

Mótið gekk mjög vel enda veðrið frábært alla keppnisdaga. 

Elsti keppnishópurinn 17-21 árs lék 54 holur og lauk keppni í dag fimmtudag. Sérstök keppni um Nettóbikarinn var leikin í elstu flokkunum, og sigruðu Tómas Eiríksson Hjaltested og Sara Kristinsdóttir en þau voru á lægsta skori stúlku og pilts í 54 holu höggleiknum.

Aðrir keppnishópar, þ.e. 14 ára og yngri og 15-16 ára léku 36 holur á tveimur keppnisdögum, þriðjudag og miðvikudag. Einnig var Nettó Áskorendamótið leikið á fimmtudag, fréttir og úrslit er að finna hér.

Lokahóf var haldið eftir að hver flokkur lauk keppni þar sem boðið var upp á veitingar. 

Marinó Már myndasmiður tók myndir sem hægt er að sjá hér.

Einnig var Instagram story í gangi alla dagana á @gkggolf

Keppt var í þremur aldursflokkum pilta og þremur hjá stúlkum og voru úrslitin eftirfarandi:

Úlfar Jónsson og Aron Snær Júlíusson eru með keppendum á myndunum – en Úlfar er sexfaldur Íslandsmeistari í golfi og atvinnumaðurinn Aron Snær sigraði á Íslandsmótinu árið 2021 á Akureyri og hann er ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni.

14 ára og yngri strákar

1. Arnar Daði Svavarsson, GKG (72-69) 141 högg.
2. Benjamín Snær Valgarðsson, GKG (74-76) 150 högg.
3. Stefán Jökull Bragason, GKG (74-77) 151 högg.

14 ára og yngri stúlkur

1. Erna Steina Eysteinsdóttir, GR (81-75) 156 högg.
2. Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA (79-80) 159 högg.
3. Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG (79-82) 161 högg.

15-16 ára drengir

1. Guðjón Frans Halldórsson, GKG (68-78) 146 högg.
2. Snorri Hjaltason, GKG (73-75) 148 högg.
3. Hafsteinn Thor Guðmundsson, GHD (79-73) 152 högg.

15-16 ára stúlkur

1. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS (74-78) 152 högg.
T2. Pamela Ósk Hjaltadóttir GM (80-77) 157 högg.
T2. Eva Kristinsdóttir, GM (78-79) 157 högg.

17-21 árs drengir

1. Tómas Eiríksson Hjaltested, GR (74-70-68) 212 högg.
2. Arnór Tjörvi Þórsson, GR (72-72-70) 214 högg.
3 .Jóhann Frank Halldórsson, GR (70-76-71) 217 högg.

17-21 árs stúlkur

1. Sara Kristinsdóttir, GM (74-76-79) 229 högg.
2. Elsa Maren Steinarsdóttir, GL (77-75-79) 231 högg.
3. Karen Lind Stefánsdóttir, GKG (78-79-79) 236 högg.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ