Golfsamband Íslands

Veigar Heiðarsson fagnaði sigri á Titleist Unglingaeinvígi GM 2022

Veigar Heiðarsson. Mynd/GM

Titleist Unglingaeinvígið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar þann 16. september s.l. Mótið hefur verið árlegur viðburður allt frá árinu 2005 og fór það nú fram í 18. skipti.

Bestu kylfingar landsins í unglingaflokki var boðið til leiks og háðu harða baráttu um titilinn við frábærar aðstæður á Hlíðavelli.

Í úrslitunum var leikið stórkostlegt golf og keppnin var spennandi.

Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar tryggði sér sigurinn á lokaholu einvígisins. Hann fékk að launum nýjasta driverinn frá Titleist í verðlaun, Titleist TSr.

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS varð önnur og Heiðar Snær Bjarnason úr GOS varð þriðji.

Hér eru heildarúrslit mótsins

1. sæti –  Veigar Heiðarsson, GA
2. sæti – Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
3. sæti – Heiðar Snær Bjarnason, GOS
4. sæti – Róbert Leó Arnórsson, GKG
5. sæti – Gunnar Þór Heimisson, GKG
6. sæti – Hjalti Kristján Hjaltason, GM
7. sæti – Arnar Daði Svavarsson, GKG
8. sæti – Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM
9. sæti –  Markús Marelsson, GK
10. sæti – María Eir Guðjónsson, GM

Sigurvegarar Unglingaeinvígisins frá upphafi

2005 – Sveinn Ísleifsson, GKj
2006 – Guðni Fannar Carrico, GR
2007 – Andri Þór Björnsson, GR
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson, GKG
2009 – Andri Már Óskarsson, GHR
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
2011 – Ragnar Már Garðarson, GKG
2012 – Aron Snær Júlíusson, GKG
2013 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2014 – Ingvar Andri Magnússon, GR
2015 – Björn Óskar Guðjónsson, GM
2016 – Henning Darri Þórðarson, GK
2017 – Ragnar Már Ríkarðsson, GM
2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
2020 – Björn Viktor Viktorsson, GL
2021 – Hjalti Kristján Hjaltason, GM
2022 – Veigar Heiðarsson, GA

Veigar Heiðarsson, sigurvegari í Titleist Unglingaeinvíginu 2022 hjá GM. Mynd/GM
Frá vinstri: Róbert Leó, Fjóla Margrét, Veigar, Heiðar Snær, Gunnar Þór og Hjalti Kristján. Mynd/GM

Exit mobile version