/

Deildu:

Auglýsing

Uppskeruhátíð Golfsambands Íslands fer fram á morgun,  30. september kl 17:00 hjá Íslandsbanka Kirkjusandi 2. Golfsamband Íslands ásamt samstarfsaðilum, Eimskipafélagi Íslands og Íslandsbanka býður gesti velkomna á uppskeruhátíðina, en þar verða stigameistarar krýndir og viðurkenningar veittar þeim kylfingum sem skarað hafa framúr á liðnu sumri. Veittar eru viðurkenningar fyrir 1.-3. sæti í öllum flokkum.

Það er von Golfsambands Íslands að sjá sem flesta á Uppskeruhátíðinni og eru allir velkomnir, kylfingar, forráðamenn og foreldrar auk þess sem forystumenn klúbbanna eru hvattir til að mæta.

Mynd: Rúnar og Signý Arnórsbörn, stigameistarar Eimskipsmótaraðarinnar 2013.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ