Gunnlaugur Árni Sveinsson, stigameistari í flokki 15-16 ára 2021. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, er stigameistari unglinga 2021 í flokki 15-16 ára pilta. Gunnlaugur Árni lék á öllum fimm stigamótum tímabilsins og hann sigraði á þremur þeirra og varð tvívegis í öðru sæti. Hann sigraði á Íslandsmótinu í golfi 2021 í sínum aldursflokki.

Skúli Gunnar Ágústsson, GA, varð annar. Hann tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hann sigraði á einu þeirra, varð tvívegis í öðru sæti og á topp 5 á hinum tveimur mótunum.

Veigar Heiðarsson, GA, varð þriðji. Hann tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Veigar sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni, hann var þrívegis í þriðja sæti og einu sinni í því fjórða.

Stigalisti 15-16 ára piltar:

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG. Mynd/seth@golf.is.
Veigar Heiðarsson, GA, Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG og Skúli Gunnar Ágústsson, GA. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ