Mjög góð þátttaka er á fyrstu mótunum á Unglingamótaröð GSÍ sem og Áskorendamótaröðinni.
Rástímarnir á fyrsta mótið á Unglingamótaröðinni á Garðavelli á Akranesi eru nú aðgengilegir á golf.is. Einnig eru skjáskot af rástímum neðst í þessari frétt.
Áskorendamótið fer fram á Kálfatjarnarvelli hjá GVS laugardaginn 18. maí. Ræst verður út í öllum flokkum kl.9:00 af öllum teigum.
Keppendur og fylgdarfólk þeirra er vinsamlegast beðið um að mæta tímanlega. Æfingasvæði GVS verður opið fyrir keppendur og boltar á svæðinu án endurgjalds.
Í golfskála GVS eru upplýsingar um hvar keppendur eiga að hefja leik, þ.e. á hvaða teig á vellinum.
Allar tilkynningar varðandi mótin verða birtar á golf.is og því leikmenn og aðstandendur beðnir um að fylgjast vel með á síðunni.
Við hvetjum leikmenn og aðstandendur að klæða sig eftir veðri og óskum öllum góðs gengis
Hlökkum til að sjá ykkur – Mótanefnd GSÍ
Rástímar föstudaginn 17. maí – Unglingamótaröðin Garðavöllur
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.09.43-PM-1024x597.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.09.58-PM-1024x598.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.10.12-PM-1-1024x298.png)
Rástímar laugardag 18. maí – Unglingamótaröðin Garðavöllur
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.12.06-PM-1-1024x601.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.12.32-PM-1024x601.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.12.19-PM-1024x580.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-05-15-at-3.12.46-PM-1024x231.png)