Jaðarsvöllur Akureyri, Axel Bóasson, GK. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Tvær brautir á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar verða lengdar fyrir Íslandsmótið í golfi sem fer fram í byrjun ágúst. Þetta kemur fram á fréttavefnum akureyri.net.

Miðað er við hvíta teiga „karlateigana“ – 17. brautin lengist um 44 metra og verður sem fyrr lengsta braut vallarins, og 3. brautin lengist um 28 metra. Af bláum teigum, sem er m.a. notaður af meistaraflokkskylfingum í kvennaflokki, lengist 17. brautin einnig um 23 metra en blái teigurinn á 3. braut breytist ekki. Einnig á að lengja 7. braut vallarins af bláum teigum og verður hún þá 315 metrar að lengd í stað þess að vera 259 metrar af bláum í dag.

Engar breytingar verða gerðar á lengd áðurnefndra brautra af gulum eða rauðum teigum.

Báðar brautirnar eru par 5 og eru á meðal lengstu brauta vallarsins. 3. brautin er nú 442 metrar en verður 470 metrar, 17. brautin er hins vegar 507 metra löng en verður 551 m.

Vinna við endurhönnun og uppbyggingu Jaðarsvallar hófst 2004. Lokið er við að endurgera allar flatir og alla teiga og er lenging brautanna liður í áframhaldandi þróun vallarins.

„Þetta hefur því lengi staðið til, högg kylfinga hafa lengst nokkuð á síðustu árum, meðal annars vegna breytinga á búnaði,“ segir Steindór Kristinn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Akureyrar, við Akureyri.net. „Ekki skemmir fyrir að klára þetta fyrir Íslandsmótið í sumar,“ segir hann.

Eftir breytinguna nálgast Jaðarsvöllur það að verða 6.100 metra langur, og þar með lengsti völlur landsins.

„Það var ekki markmiðið í sjálfu sér, við erum ekki að lengja völlinn lenginganna vegna. Við viljum fyrst og fremst að hver og ein hola verði sem best og skemmtilegust bæði fyrir keppendur og áhorfendur,“ segir Steindór.

Hér fyrir neðan má sjá hvernig breytingarnar verða.

Þannig er 3. brautin í dag.. Mynd/GA.
Þriðja brautin eftir breytingar. Mynd/GA
17. brautin fyrir breytingar. Mynd/GA.
17. brautin eftir breytingar. Mynd/GA

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ