Dagbjartur Sigurbrandsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús, GR, hefja í dag leik á 2. stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour mótaröðina, sem er sú sterkasta í Evrópu. Fjögur úrtökumót eru leikin samtímis dagana 30. október – 2. nóvember. Öll fara þau fram á Spáni. Í hvert mót mæta 72 kylfingar til leiks og spila um 24 laus sæti í lokaúrtökumótinu.
Sjö íslenskir kylfingar tóku þátt í 1. stigi úrtökumótanna í september, en einungis tveir þeirra komust áfram.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðmundur Ágúst vann sitt úrtökumót í Svíþjóð og tryggði sér með því sæti á 2. stiginu.
Mót hans fer fram á Fontanals Golf Club vellinum í Girona. Guðmundur lék völlinn fyrr á árinu í Challenge de España mótinu á HotelPlanner Tour, og lauk þar leik í 47. sæti á sex höggum undir pari.
Eftir fyrstu tvo hringi mótsins er Guðmundur jafn í 47. sætinu. Hann lék fyrri hringinn á 74 höggum, þremur yfir pari, og þann seinni á 68 höggum, þremur undir pari. Hann er fjórum höggum frá öruggu sæti í lokaúrtökumótinu en gæti hæglega náð að klifra upp stöðutöfluna með góðri spilamennsku.

Hér má fylgjast með stöðunni hjá Guðmundi
Dagbjartur Sigurbrandsson
Dagbjartur lék vel í sínu úrtökumóti í Danmörku, endaði þar jafn í 8. sæti og var í öruggu sæti frá upphafi móts.
Mót hans fer fram á Desert Springs Golf Club svæðinu í Almería. Á meðal keppenda eru núverandi kylfingar DP mótaraðarinnar, HotelPlanner Tour og fyrrum sigurvegarar á Evrópumótaröðinni. Spennandi verður að fylgjast með Íslandsmeistaranum taka sín fyrstu skref í átt að atvinnumennsku gegn öflugri samkeppni.
Eftir fyrstu tvo hringina er Dagbjartur jafn í 21. sætinu á fjórum höggum undir pari. Fyrsta hringinn lék hann á 73 höggum, einu yfir pari. Hann fékk fjóra fugla, þrjá skolla og einn tvöfaldan. Annan hringinn lék Íslandsmeistarinn frábærlega, fékk sex fugla, einn skolla og kom í hús á 67 höggum. Það reyndist einn besti hringur dagsins og fór Dagbjartur upp um 25 sæti á milli daga. Hann er sem stendur í öruggu sæti, en efstu 24 kylfingar mótsins komast áfram í lokamótið.

Hér má fylgjast með stöðunni hjá Dagbjarti
Haraldur Franklín Magnús
Haraldur Franklín þurfti ekki að leika á 1. stiginu og komst beint inn í mót vikunnar eftir góðan árangur á HotelPlanner Tour mótaröðinni í sumar. Þar endaði hann í 63. sæti stigalistans, þrátt fyrir að hafa leikið í mikið færri mótum en flestir kylfingar mótaraðarinnar. Hans besti árangur kom á Dormy Open mótinu í Svíþjóð þar sem hann endaði annar og var hársbreidd frá því að leika lokahringinn á 59 höggum.
Mót hans fer fram á Isla Canela Links vellinum í Huelva.
Eftir tvo hringi er Haraldur jafn í 48. sæti á einu höggi undir pari. Hann lék fyrri hringinn á 69 höggum, tveimur undir pari, og þann seinni á 73 höggum. Haraldur er fimm höggum frá öruggu sæti fyrir seinni hluta mótsins en á nóg af fuglum inni um helgina.


