GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmótið í holukeppni kvenna 2025 fer fram á Urriðavelli Golfklúbbsins Odds dagana 13.-15. júní.

Skráning í mótið er hafin og má finna í hlekk hér að neðan.

Skráningu lýkur fimmtudaginn 5. júní kl. 23:59.


Keppnisskilmálar:


Leikið er samkvæmt reglugerð um Íslandsmót í holukeppni í flokki kvenna. Í kvennaflokki er hámarksforgjöf 8,5 en hámarksfjöldi keppenda er 84. Hámarksforgjöf miðast við forgjöf þátttakanda kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur fimmtudaginn 5. júní kl. 23:59.

Í fyrri hluta Íslandsmótsins er leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komast áfram í útsláttarkeppni.

Að höggleik loknum eru leiknar fjórar umferðir í holukeppni:

1. umferð: 16 manna holukeppni.

2. umferð: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast.

3. umferð: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast. 

4. umferð: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti.

1.sæti: 140.000 kr.  

2. sæti: 100.000 kr.   

3. sæti: 70.000 kr.

Meiri upplýsingar og keppnisskilmála má finna í hlekk hér að ofan.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ