Auglýsing

Golfklúbburinn Leynir hélt upp á 50 ára afmæli klúbbsins í dag. Félagsmenn fögnuðu tímamótunum með glæsilegri veislu í golfskálanum við Garðavöll á Akranesi. Við þetta tilefni voru tveir félagsmenn útnefndir heiðursfélagar en þeir eru Reynir Þorsteinsson og Guðmundur Valdimarsson.

Þórður Emil Ólafsson formaður Leynis afhenti heiðursviðurkenningarnar, en Guðmundur Sigurbjörnsson,  tók við viðurkenningunni fyrir hönd afa síns, sem var ekki á landinu.

Í ræðu Þórðar kom m.a. fram að Reynir hefur lagt mikið á vogarskálarnar í starfi Leynis allt frá því hann gerðist félagi árið 1976. Hann var lengi formaður klúbbsins, sat í framkvæmdanefnd um stækkun vallarins í 18 holur, og var drifkraftur í barna – og unglingastarfi klúbbsins eftir að hann hætti stjórnarstörfum.

Formaður sagði einnig frá því að Guðmundur hefur verið félagi í Leyni frá árinu 1979 og afrek hans í öldungakeppnum  er athyglisverður. Guðmundur hefur m.a. fjórum sinnum fagnað Íslandsmeistartitlum í sínum aldursflokki og hann er margreyndur landsliðsmaður.

Leynir afmælishóf 50 ára  (48)

Haukur Örn Birgisson forseti Golfsambands Íslands var viðstaddur í dag ásamt Herði Þorsteinssyni framkvæmdastjóri GSÍ. Haukur sendi Leynismönnum góðar kveðjur í ræðu sinni og afhenti klúbbnum gjöf að þessu tilefni. Haukur sagði m.a. að það væri tilhlökkun í herbúðum GSÍ að starfa með Leynismönnum á afmælisárinu þar sem að hápunktur keppnistímabilsins færi fram á Garðavelli í júlí, sjálft Íslandsmótið í golfi.

Leynir afmælishóf 50 ára  (38)

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness og Guðmundur Sigvaldason framkvæmdastjóri Leynis skrifuðu við þetta tilfefni undir framkvæmdasamning vegna Íslandsmótsins í golfi. Akraneskaupstaður  mun styrkja Leyni  á ýmsum sviðum vegna Íslandsmótsins – og má þar nefna í kynningarmálum og atburðum sem á að tengja við stórmótið. Leynir fær einnig 2 milljónir kr. frá Akraneskaupstað til framkvæmda vegna mótsins.

Leynir afmælishóf 50 ára  (36)

Jón Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri ÍA, flutti einnig góðar kveðjur fyrir hönd Íþróttabandalags Akraness og færði klúbbnum gjöf.

Það stendur ýmislegt til á afmælisárinu  hjá Leyni. Á meðal þeirra viðburða sem verða á dagskrá er afmælismót, sem verður væntanlega fyrsta mót tímabilsins fyrir klúbbmeðlimi. Veglegt afmælisblað verður gefið út í maí. Afmælismót fer fram fyrir samstarfsaðila klúbbsins, forsvarsmenn klúbba og styrktaraðila þegar líður á sumarið og Íslandsmótið í golfi er hápunkturinn á afmælisárinu.

Viðtöl við klúbbfélaga verða einnig birt á heimasíðu Leynis en myndband með úrdrætti úr þeirri vinnu var frumsýnt í dag við góðar undirtektir gesta. Kristinn Gauti Gunnarsson setti það myndband saman og færðu forsvarsmenn Leynis honum bestu þakkir fyrir vel unnið verk.

 

 

Leynir afmælishóf 50 ára  (53) Leynir afmælishóf 50 ára  (52) Leynir afmælishóf 50 ára  (51) Leynir afmælishóf 50 ára  (50) Leynir afmælishóf 50 ára  (49) Leynir afmælishóf 50 ára  (47) Leynir afmælishóf 50 ára  (46) Leynir afmælishóf 50 ára  (45) Leynir afmælishóf 50 ára  (44) Leynir afmælishóf 50 ára  (43) Leynir afmælishóf 50 ára  (48) Leynir afmælishóf 50 ára  (42) Leynir afmælishóf 50 ára  (41) Leynir afmælishóf 50 ára  (40) Leynir afmælishóf 50 ára  (39) Leynir afmælishóf 50 ára  (38) Leynir afmælishóf 50 ára  (37) Leynir afmælishóf 50 ára  (36) Leynir afmælishóf 50 ára  (35) Leynir afmælishóf 50 ára  (33) Leynir afmælishóf 50 ára  (32) Leynir afmælishóf 50 ára  (31) Leynir afmælishóf 50 ára  (30) Leynir afmælishóf 50 ára  (29) Leynir afmælishóf 50 ára  (28) Leynir afmælishóf 50 ára  (27) Leynir afmælishóf 50 ára  (26) Leynir afmælishóf 50 ára  (25) Leynir afmælishóf 50 ára  (24) Leynir afmælishóf 50 ára  (23) Leynir afmælishóf 50 ára  (22) Leynir afmælishóf 50 ára  (21) Leynir afmælishóf 50 ára  (20) Leynir afmælishóf 50 ára  (19) Leynir afmælishóf 50 ára  (18) Leynir afmælishóf 50 ára  (17) Leynir afmælishóf 50 ára  (16) Leynir afmælishóf 50 ára  (15) Leynir afmælishóf 50 ára  (14) Leynir afmælishóf 50 ára  (13) Leynir afmælishóf 50 ára  (12) Leynir afmælishóf 50 ára  (11) Leynir afmælishóf 50 ára  (10) Leynir afmælishóf 50 ára  (9) Leynir afmælishóf 50 ára  (8) Leynir afmælishóf 50 ára  (7) Leynir afmælishóf 50 ára  (6) Leynir afmælishóf 50 ára  (5) Leynir afmælishóf 50 ára  (4) Leynir afmælishóf 50 ára  (3) Leynir afmælishóf 50 ára  (2) Leynir afmælishóf 50 ára  (1) 834 Leynir afmælishóf 50 ára  (46) Leynir afmælishóf 50 ára  (5)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ