/

Deildu:

Auglýsing

Rannís hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:

·         Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.

·         Fræðsluverkefna um gildi hreyfingar fyrir alla.

·         Fjölbreytt verkefni sem hvetja ungt fólk sérstaklega til að taka þátt og hreyfa sig reglulega.

·         Íþróttarannsókna.

·         Verkefna samkvæmt 13. grein íþróttalaga.

Lágmarksstyrkur til verkefna er 250 þúsund krónur.

Vakin er athygli á því að sami umsækjandi getur aðeins sent inn eina umsókn í hverjum umsóknarflokki.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á www.rannis.is.

Umsóknum skal skilað á rafrænu formi fyrir kl. 15:00, mánudaginn 3. október 2022.

Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, netfang: andres.petursson@rannis.is, sími 699 2522.

ÍSÍ hvetur sambandsaðila sína og íþrótta- og ungmennafélög innan þeirra vébanda til að sækja um styrki úr sjóðnum til verkefna sem falla undir ofangreinda upptalningu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ