Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni héldu áfram góðri spilamennsku sinni í Svíþjóð í vikunni.
Swedish Strokeplay mótið á LET Access mótaröðinni fór fram dagana 1.-3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir.
Ragnhildur Kristinsdóttir náði besta árangri íslensku kylfinganna og endaði jöfn í fimmta sæti á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur lék hringina þrjá á 74, 72 og 71 höggi, en par vallarins er 73. Hún endaði mótið af miklum krafti og fékk tvo fugla á síðustu þremur holunum.

Hulda Clara Gestsdóttir átti einnig gott mót og endaði jöfn í níunda sæti á einu höggi undir pari. Hulda lék hringina á 74, 71 og 73 höggum og heldur áfram að festa sig í sessi á meðal efstu kylfinga mótaraðarinnar á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur.
Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 31. sæti á fjórum höggum yfir pari. Hún lék hringina þrjá á 77, 71 og 75 höggum.
Eftir mótið er Hulda Clara í 6. sæti á stigalista LET Access mótaraðarinnar, Ragnhildur í 10. sæti og Andrea í 25. sæti. Efstu sjö kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.




