Site icon Golfsamband Íslands

Ragnhildur í 17. sæti og Guðrún í því 45. á LET Access móti í Frakklandi

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR hafa lokið leik á móti sem fram fór á Terre Blanche golfsvæðinu í Frakklandi. Mótið var hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki.

Mótið fór fram á Golf de Terre Blanche en golfsvæðið hefur á síðustu árum verið valið eitt af bestu golfsvæðum í Evrópu.

Keppendur voru alls 108. Leiknir voru þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Niðurskurður var eftir 2. keppnisdag.

Ragnhildur lék á 218 höggum (+2) samtals (75-73- 70) og endaði hún í 17. sæti. Guðrún Brá lék á 225 höggum (+9) (75-73-77) og endaði hún í 45. sæti. Sigurvegarinn, Anna Magnuson, frá Svíþjóð lék á -9 samtals.

Þetta var fyrsta mótið hjá Guðrúnu Brá og Ragnhildi á þessu ári. Þær eru báðar með keppnisrétt á LET Access á þessu tímabili og gætu einnig fengið tækifæri á mótum á LET Evrópumótaröðinni.

Smelltu hér fyrir úrslit mótsins:

Exit mobile version