Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Mynd/EGA
Auglýsing

Opna breska áhugamannamótið fer fram dagana 7.-12. júní en mótið er eitt sterkasta áhugamannamót í kvennaflokki á heimsvísu og fer það nú fram í 118. sinn. Leikið á Kilmarnock, Barassie, í Skotlandi.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leiknar eru 36 holur með höggleiksfyrirkomulagi – 64 efstu kylfingarnir komast áfram í næstu umferð þar sem að holukeppni tekur við. Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur.

Þrír íslenskir keppendur frá Íslandi tóku þátt og komust þær allar í gegnum höggleikskeppnina þar sem að 64 efstu af alls 95 keppendum fóru áfram. Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi og sigurvegarinn fær tækifæri til þess að leika á risamótum á atvinnumótaröðum í kvennaflokki.

Jóhanna Lea mætti Emily Toy frá Skotlandi í dag í 4. umferð en Toy endaði í 5. sæti í höggleikskeppninni og sigraði m.a. á þessu móti fyrir tveimur árum á Royal County Down á Norður-Írlandi. Leikurinn í dag var afar spennandi en Jóhanna Lea var þrjár holur upp þegar þrjár holur voru eftir. Toy náði góðum lokakafla en á lokaholunni fengu þær báðar skolla sem dugði Jóhönnu Leu til sigurs.

Jóhanna mætir Kate Lanigan frá Írlandi í fjórðungsúrslitum sem fram fara á morgun, föstudag.

Árangur Jóhönnu Leu er samkvæmt bestu heimildum sá besti sem íslenskur kylfingur hefur náð í kvennaflokki á Opna breska áhugamannamótinu. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, varð í 13. sæti í höggleiknum árið 2017 en tapaði naumlega í 1. umferð holukeppninnar.
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, náði 29. sætinu í höggleiknum árið 2020 og komst í gegnum 1. umferðina í holukeppninni í bráðabana sem lauk á 20. holu. Hulda Clara tapaði síðan afar naumlega í 2. umferð holukeppninnar.

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, komst í morgun áfram í 16-manna úrslit keppninnar þegar hún sigraði Hazel Macgarvie frá Skotlandi í morgun 2/1 í 32-manna úrslitum.

Skor keppenda er uppfært hér:

Jóhanna Lea mætti Huldu Clöru Gestsdóttur, GKG, í 1. umferð og hafði þar betur 2/0 í hörkuleik – og komst þar með í 2. umferð keppninnar.

Jóhanna Lea endaði í 53. sæti í höggleikskeppninni en Hulda Clara varð í 12. sæti í höggleiknum.

Skor keppenda er uppfært hér:

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, náði þeim einstaka árangri að leika best allra í höggleikskeppninni og er það í fyrsta sinn sem íslenskur áhugakylfingur nær þeim árangri. Ragnhildur mætti Aine Donagan frá Írlandi í 1. umferð en Donagan endaði í 64. sæti í höggleikskeppninni. Donagan sigraði Ragnhildi 4/3.

Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi og sigurvegarinn fær tækifæri til þess að leika á risamótum á atvinnumótaröðum í kvennaflokki.

Ragnhildur lék gríðarlega vel á öðrum keppnisdeginum en hún lék á 66 höggum eða 7 höggum undir pari vallar. Hún lék samtals á 74-66 höggum eða 6 höggum undir pari vallar. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, lék hringina tvo á 77-72 höggum eða 4 höggum yfir pari samtals. Hún endaði í 12. sæti í höggleikskeppninni. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, lék samtals á 11 höggum yfir pari 81-76 sem skilaði henni í 53. sæti og er hún líka og Ragnhildu og Hulda Clara komin áfram í holukeppnina.

Skor keppenda er uppfært hér:

Sigurvegarinn fær keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylfingum, AIG mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian meistaramótinu og Augusta National meistaramótinu.

Nánar um mótið hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ