Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Sanya meistaramótinu á LET Evrópumótaröð kvenna sem fram fór í Kína. Ólafía var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en hún lék á 75 og 74 höggum eða +5 samtals.

Það eru mörg stór verkefni framundan hjá Ólafíu en hún hefur leik á miðvikudaginn á Fatima Bint Mubarak mótinu sem fram fer í Abu Dhabi. Mótið er hluti af LET Evrópumótaröð atvinnukvenna sem er sterkasta mótaröð Evrópu.

Að loknu mótinu í Abu Dhabi fer Ólafía til Indlands þar sem hún tekur þátt á LET Evrópumótaröðinni dagana 11.-13. nóvember. Að því loknu fer Ólafía Þórunn til Bandaríkjanna þar sem hún tekur þátt á lokastigi úrtökumótsins fyrir LPGA atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum sem fram fer í lok nóvember og byrjun desember.  

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ