Auglýsing

Ný viðbót við Hvaleyrarvöll var opnuð s.l. föstudag hjá Golfklúbbnum Keili ásamt breytingum á Sveinskotsvelli. Þetta kemur fram á nýjum vef Keilis. 

Þrjár nýjar brautir bættust við Hvaleyrina. Ný 13. hola, Holtið, er par 4 og liggur frá 18. flöt að nýjum 14. teig. Ný 14. hola, Lónið, liggur frá bátaskýlunum við Hvaleyrarlón og að teig nýrrar 15. holu, sem er par 3 hola og hefur hlotið nafnið Yfir hafið og heim.

Framkvæmdatíminn hefur verið með allra stysta móti. Sáð var í 14. brautina fyrir 11 mánuðum síðan og er ótrúlegt að sjá gróskuna í brautinni. Vallarstarfsmenn vinna nú að því að ganga frá síðustu glompunum ásamt því að klára síðustu teigana.

Á 13. brautinni verður slegið af aftasta parti 1. teigs á Sveinskotsvelli af gulum, bláum og rauðum teigum til að byrja með. Nýir teigar 13. brautar verða tilbúnir seinna í sumar.

Hér að neðan má sjá teikningu af breytingunum, og verður einnig hægt að skoða stærri útgáfu á töflu við golfverslunina og á borðum í sal golfskálans.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ