Íþróttahreyfingin og covid
Auglýsing

Heilbrigðisráðherra hefur nú gefið út nýja reglugerð sem tekur gildi 25. maí og gildir til og með 16. júní. Með henni eru gerðar verulegar tilslakanir á íþróttastarfi.

Helstu breytingar í reglugerð heilbrigðisráðherra sem snerta íþróttastarfið eru eftirfarandi:

·  Heimilt verður að hafa að hámarki 150 þátttakendur í hverju rými á æfingum og í keppni.

·  Heimilt verður að hafa að hámarki 300 manns í hverju rými á áhorfendasvæðum að uppfylltum skilyrðum skv. 3. grein reglugerðar heilbrigðisráðherra og að hámarki þrjú rými fyrir áhorfendur í hverri byggingu. Skilyrðin eru eftirfarandi:

o    Tryggt sé að fjarlægð milli ótengdra gesta sé a.m.k. 1 metri.

o    Allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum.

o    Allir gestir séu skráðir í númeruð sæti, a.m.k. nafn, kennitala og símanúmer. Skráin skal varðveitt í tvær vikur og eytt að þeim tíma liðnum.

o Allir gestir noti andlitsgrímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru.

o Komið verði eins og kostur er í veg fyrir frekari hópamyndun fyrir viðburð, í hléi og eftir viðburð.

o Skipuleggjendum viðburða er skylt að tryggja þegar gestir eru ekki í sætum, svo sem fyrir og eftir viðburð og í hléi, að ekki komi fleiri saman en 150 manns og að virt sé 2 metra nálægðartakmörkun milli ótengdra aðila.

o Umgengni í hverju hólfi skal vera í samræmi við leiðbeiningar sóttvarnalæknis þar að lútandi svo koma megi í veg fyrir blöndun hólfa.

Sé eitthvert ofangreindra skilyrða ekki uppfyllt er hámarksfjöldi á viðburði 150 manns í hverju rými. Gæta þarf að tveggja metra lágmarksfjarlægð og nota grímur sé ekki hægt að tryggja hana.

· Heilsu- og líkamsræktarstöðvar og sund- og baðstaðir mega opna fyrir leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Í hverju rými í heilsu- og líkamsræktarstöðvum skulu ekki vera fleiri en 15 manns og 2 metra nálægðarmörk.

Sjá frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra, sem gildir til 16. júní, 2021.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ