/

Deildu:

Auglýsing

Það var tilviljun sem réði því að Auðunn Einarsson, PGA golfkennari, réð sig til starfa í Noregi fyrir tveimur árum. Auðunn kann vel við sig á nýja staðnum og það hefur margt komið Ísfirðingnum á óvart hjá frændum okkar Norðmönnum. Auðunn var á sínum tíma í fremstu röð afrekskylfinga á Íslandi og hann starfaði lengi hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði sem golfkennari. Í nýjasta tölublaði tímaritsins Golf á Íslandi er ítarlegt viðtal við Auðunn Einarsson.

„Ég hafði verið á heimaslóðum á Ísafirði í tæp tvö ár og var að skoða möguleikana á að komast til útlanda. Ég sendi upplýsingar um sjálfan mig til PGA samtakana í Noregi og tveimur dögum síðar fékk ég símtal. Það má eiginlega segja að ég hafi laumast út án þess að vita hvort ég fengi starfið. Ég var á sínum tíma mjög ánægður í Hafnarfirði en vegna þreytu og persónulegra ástæðna ákvað ég að leita á önnur mið,“ segir Auðunn en hann starfar fyrir fyrirtæki sem heitir Golfbutikken sem hefur samstarf við fjóra golfvelli og golfverslanir.

Fjölbreytt verkefni

„Það sem ég er að gera hérna í Noregi er nokkuð frábrugðið því sem ég var vanur heima á Íslandi. Golfbutikken rekur einnig ferðaskrifstofu og við erum fjórir PGA kennarar sem starfa hjá fyrirtækinu. Mitt svæði er við Arendal & Omegn golfklúbbinn sem er rúmlega þúsund manna klúbbur með æðislegum 18 holu velli, 9 holu par 3 og góðu æfingasvæði. Ég sé einnig Grimstad GK sem er um 700 manna klúbbur, 9 holu völlur og er ansi skemmtilegur einnig. Grenland og Kragerø eru einnig undir sama hatti en ég fer lítið þangað. Kragerø er GolfResort og er á allt á öðru plani. Það má segja að eyðslusömu Norðmennirnir fara þangað yfir sumarið,“ segir Auðunn en Arendal er staðsett skammt suður af höfuðborginni Osló og er nánast mitt á milli Oslóar og Kristiansand á suðurströnd Noregs.  Eins og gefur að skilja er skipulagið mikið hjá Norðmönnum og segir Auðunn að einkatímarnir séu það eina sem ekki er skipulagt áður en vertíðin hefst.

„Norðmenn eru ekki eins duglegir að nota einkatímana hjá golfkennurum eins og á Íslandi. Hinsvegar er ég með mikið af þriggja daga golfskólum, byrjendanámskeiðum og svo er klúbbaæfing yfir allt sumarið. Þar getur hinn almenni kylfingur gengið að mér vísum og verið á allt að 3 klst. æfingum sem skiptist niður í pútt, stutt spil og sveiflu. Ég vinn kannski langa daga eða frá 10 til 20 en þeir eru misþéttir og það er nokkuð flókið að útskýra fyrirkomulagið. Ég er tvo daga í Grimstad og þrjá í Arendal og sumar helgar deilast niður eftir námskeiðum og löngum helgarfríum sem ég fæ inn á milli. Þar sem ég hef skrifstofu í Arendal og stærri búð sé ég um allar pantanir og skipulagsvinnu þaðan. Aðstoða svo bara í búðinni ef ég er laus sem og í Grimstad. Þarf svo að flytja á milli staða vörur eftir þörfum,“ segir Auðunn.

Veðrið, bátar og niðursveifla

Líkt og víða annars staðar hefur niðursveifla verið í golfíþróttinni í Noregi.

„Golfið er á niðurleið hérna eins og í mörgum löndum og menn ekki á eitt sáttir hvað veldur. Ég hef heyrt oft þá kenningu að þegar aukningin var sem mest, þá hafi sprottið upp golfvellir út um allt og núna eru of fáir meðlimir í svona mörgum klúbbum. Sumir klúbbar hafa reynt að lokka til sín meðlimi með þvi að lækka árgjaldið. Svo heyrir maður af gjaldþrotum hér og þar en alltaf byrja þeir aftur. Sumir vilja meina að þetta sé eðlilegt og muni jafnast út fljótlega því útbreiðslan hafi verið svo gífurleg fyrir um 10 árum. Golfíþróttin er að keppa við svo margt á sumrin. T.d hjólreiðafólkið sem er svakalega vinsælt núna. Það eiga nánast allir Norðmenn báta og það hefur einnig áhrif á golfið. Ef veðrið er mjög gott þá eru Norðmenn ekki að spila golf því þá eru þeir á bátunum sínum. Þeir spila heldur ekki ef veðrið er ekki nógu gott – en allir íslenskir kylfingar myndu fagna því veðri sem Norðmenn telja ekki vera nógu gott, sem er dæmigert fyrir venjulegan Íslending.

Laufey Garðarsdóttir er sambýliskona Auðuns og eiga þau eina unga dóttur sem fæddist í sumar. Auðunn segir að það sé ekkert fararsnið á þeim en það sé aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér.

„Þeir sem þekkja mig vel vita að framtíðarplönin hjá mér geta breyst með stuttum fyrirvara. Það er gott að vera hér og fjölskyldan er að koma sér vel fyrir. Við eignuðumst litla prinsessu í sumar svo ég held að mér sé óhætt að segja að við erum ekki að leita eftir neinu nýju en við erum heldur ekki búin að ákveða okkur að setjast hér að. Á meðan maður hefur ennþá metnað fyrir þessu starfi mun ég halda áfram. Í samstarfi við minn vinnuveitanda og klúbbana er ég stöðugt að reyna að bæta sjálfan mig og finna nýjar leiðir að betri árangri.“

Íslensk börn – og unglingar æfa mun meira en Norðmenn

Auðunn segir að afreksstarfið sé með allt öðrum hætti í Noregi en á Íslandi og íslensk börn – og unglingar æfi mun markvissara en Norðmenn.

„Afreksstarf í Noregi er enn stór ráðgáta fyrir mér. Ef ég miða við það sem ég þekki best hérna í kringum mig þá eru Norðmenn langt á eftir Íslandi. Stóru klúbbarnir í Osló eru á allt öðru plani að mér skilst. Kostirnir eru samt sem áður augljósir. Ég fær miklu meiri tíma með hverjum og einum. Þau fá bara eina æfingu í viku hjá mér og stafar það fyrst og fremst að því að klúbbarnir borga þetta sjálfir. Hér þekkist ekki stuðningur frá bæjum og sveitarfélögum. Hérna reka klúbbarnir sig sjálfir og mismunandi hvernig þeir ná inn fjármagni. Mótahaldið er flókið, landið er stórt og ég er með stórar hugmyndir varðandi mótahaldið en það fer mestur tími í að ná inn nýjum meðlimum í golfklúbbana og á meðan situr barna og afreksstarfið á hakanum. Fjöldi unglinga í golfi er allavega langt frá því sem maður þekkir heima. Það gæti verið að unglingar hafi það of gott hérna í góðærinu og nenni ekki að æfa – ég bara veit það ekki,“ sagði Auðunn Einarsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ