Auglýsing

Níu íslenskir keppendur taka þátt á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Nordic Golf League atvinnumótaröðina dagana 4.-5. október 2023. Mótið fer fram á Greve golfvellinum í Danmörku og komast 26 efstu áfram á lokastig úrtökumótsins sem fram fer dagana 11.-12. október.

Alls eru 59 keppendur á 1. stigi úrtökumótsins í Danmörku.

Íslensku keppendurnir eru: Elvar Már Kristinsson (GR), Kristófer Orri Þórðarson (GKG), Logi Sigurðsson (GS), Hákon Harðarson (Royal Golf Club), Hlynur Bergsson (GKG), Jóhann Frank Halldórsson (GR), Ingi Þór Ólafson (GM), Aron Emil Gunnarsson (GOS) og Kristófer Karl Karlsson (GM).

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Alls er keppt á sex golfvöllum á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Nordic Golf League. Í Svíþjóð er keppt á þremur völlum og komast samtals 42 keppendur áfram af þeim völlum inn á lokaúrtökumótið.

Í Finnlandi komast 7 leikmenn áfram og 7 leikmenn á úrtökumóti sem fram fer í Noregi. Eins og áður segir komast 26 leikmenn áfram af úrtökumótinu sem fer fram í Danmörku.

Nordic Golf League atvinnumótaröðinni er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ