/

Deildu:

Auglýsing

„Að vinna Íslandsmeistaratitilinn var í sjálfu sér ekki mikil breyting og hafði engin önnur áhrif á mig en var auðvitað skemmtilegt. Þetta er draumur allra kylfinga að vinna þennan stærsta titil á Íslandi,“ segir Sunna Víðisdóttir, Íslandsmeistari kvenna 2013, í viðtali sem birt er í nýjasta tölublaði Golf á Íslandi sem kom út í þessari viku.

Hún þurfti að hafa fyrir sigrinum á Korpúlfsstaðavelli því hún byrjaði mjög illa en vann sig inn í mótið með seiglu og góðu golfi. Þegar 72 holum var lokið var hún jöfn Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur GK og Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur GR. Sunna vann svo þriggja holu umspil eftir spennugolf.

Sunna sigraði á tveimur mótum á Eimskipsmótaröðinni í vor, í Leirunni og í Borgarnesi en komst ekki alla leið á Íslandsmótinu í holukeppni á Hvaleyri. „Ég hef alltaf verið meiri höggleikskylfingur. Ég lék ágætlega en holukeppnin er annar leikur og þetta gekk ekki upp hjá mér en þetta er auðvitað titill sem ég vil ná.“

Sjálfstraustið eykst með hverjum sigri

Andlega hliðin hlýtur því að hafa styrkst með titilinum í fyrra og fleiri sigrum í vor. Við spyrjum Íslandsmeistarann að því.

„Ég fékk auðvitað aukið sjálfstraust við sigurinn á Korpu í fyrra og sigrum í sumar. Því fleiri mót sem þú vinnur þeim mun meira sjálfstraust færðu. Andlegi þátturinn hefur þó ekki verið vandamál hjá mér en auðvitað er alltaf hægt að bæta hann. Ég fékk eldskírn á Íslandsmótinu í fyrra þegar við enduðum þrjár jafnar og þurftum að fara í umspil um sigurinn.“

Hvað fór í gegnum hugann þá, þriggja holu umspil og andstæðingarnir tvær af bestu golfkonum landsins.

„Umspil og bráðabani eru auðvitað þannig að það er í raun nýtt mót. Allt eða ekkert. Ég setti upp plan áður en við fórum út í umspilið. Lagði bara upp með það að ná pörum því mistök geta kostað titilinn. Tíunda er erfið fuglahola, ellefta gefur möguleika á fugli en tólfta erfið parhola. Það gekk eftir og það var ljúft að fagna þessum titli. Það hjálpaði mér eflaust að ég þekkti Korpuna mjög vel. Spilaði hana nánast eingöngu fyrir mótið og undirbjó mig þannig allt sumarið.“

Framför í stutta spili og púttum

Nú ertu í háskóla í Bandaríkjunum þar sem þú getur leikið íþróttina allt árið. Hvernig hefur þetta gengið hjá þér?

„Ég hef bætt mig mikið í stutta spilinu og púttum. Ég hef alltaf verið slök í því að lesa flatir en bara við það að spila miklu meira hef ég lagað þann þátt auk þess sem þjálfarinn minn ytra hefur aðstoðað mig í þeim þætti sem og í stutta spilinu og púttum en Brynjar Geirsson, þjálfarinn minn hér heima hefur hjálpað mér með sveifluna. Það er ekki svo flókið. Hann skoðar bara video og sendir mér athugasemdir í tölvupósti.

Fjarþjálfun frá Reykjavík, Íslandi.“

Hvernig er tilfinningin að mæta ári síðar og verja titilinn?

„Hún er fín. Þetta er nýtt mót á öðrum velli. Ég tel mig ekki hafa mikið forskot þó ég hafi unnið í fyrra en það er auðvitað kostur að hafa unnið titilinn áður. Reynslan skiptir máli og þá hef ég leikið vel það sem af er sumri og landað tveimur sigrum. Ég reyni að mæta afslöppuð til leiks með það hugarfar að það er alltaf erfitt að verja titilinn sem þó er auðvitað markmiðið. Það er engin spurning. Fyrir mótið í fyrra setti ég of mikla pressu á mig og þegar ég fjórpúttaði 3. flötina í fyrsta hring lenti ég í vandræðum og skilaði mjög slökum fyrsta hring. Ég náði þó að vinna mig inn í mótið aftur. Það má ekki gleyma því að það er 72 holur og þó maður geri slæm mistök þá þarf það ekki að þýða að mótið sé búið. Maður verður að halda áfram. Veðrið spilar helling inn í líka. Ef það er ekki gott þá eru meiri líkur á meiri sveiflum.“

Halda boltanum í leik

Hvaða tilfinningu hefurðu fyrir Leirdalsvelli?

„Hann leggst ágætlega í mig. Það skiptir miklu máli að halda boltanum í leik, slá beint af teig og eins að hitta flatir. Það er erfiðara á þessum velli að bjarga pari með vippi eða stuttu innáhöggi og einpútti. Flatirnar eru flestar ekki stórar og svo eru þær kúptar og ýta boltanum út af ef höggið er ónákvæmt. Ég held að þetta muni skipta mestu máli í þessu móti, nákvæmni en ekki mesta högglengd.“

Hvað með framtíðina. Ertu með atvinnumennskudrauma?

„Ég á tvö ár eftir í háskólanámi og ætla að taka stöðuna að því loknu. Ég ætla að stunda golfið vel og sjá hvar ég stend þegar þessi tími er liðinn. Skólinn heitir Elon og er góður og ég kann vel við mig í Norður-Karólínu enda ekki annað hægt. Ég er í fjármálafræði og tölfræði. Hef alltaf verið mikið fyrir tölur.

Ég hef verið með fast sæti í liðinu og við erum í 1. deild. Liðið er alltaf að styrkjast, við erum að fá sterka stelpu frá Skotlandi og svo er Gunnhildur Kristjáns að koma í sama skóla, svo það verður gaman hjá okkur Íslendingunum,“ sagði Sunna Víðisdóttir.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ