Auglýsing

Golfklúbburinn Oddur var með skemmtilega dagskrá fyrir stúlkur á aldrinum 6-18 ára við golfvöll klúbbsins, Urriðavöll, á öðrum degi Hvítasunnu – mánudaginn 6. júní 2022. PGA kennarar klúbbsins og leikmenn sem eru í æfingahóp stúlknalandsliðs Íslands tóku á móti gestum og var dagurinn vel heppnaður.

Það er mikið um að vera á Urriðavelli í sumar og þar ber hæst að Evrópumót stúlknalandsliða fer fram á vellinum í byrjun sumar. Þar mæta til leiks bestu kylfingar Evrópu í stúlknaflokki og var verkefnið á öðrum degi Hvítasunnu haldið til þess að hvetja ungar stúlkur til golfiðkunar. Í tengslum við mótið ætlar Golfklúbburinn Oddur í samstarfi við Golfsamband Íslands nota tækifærið til að hvetja ungar stúlkur til golfiðkunar.

„Við verðum með tvo viðburði núna í júní. Þann 19. júní, sem er hátíðis- og baráttudagur kvenna á Íslandi, verðum við með mæðgnamót á Ljúflingi frá kl. 10-14. Áætlaður fjöldi í það mót eru 120 keppendur. Þar er markmiðið að fá yngri og eldri kylfinga til að koma saman í skemmtilegt Texas Scramble mót. Keppnisformið er mjög opið þar sem að t.d. ömmur – og langömmur geta leikið með þeim yngri eru. Markmiðið er að þetta verði skemmtilegur dagur og allir fá verðlaun fyrir þátttöku. Við hvetjum allar ungar stúlkur til að kíkja til okkar á annan í Hvítasunnu og hnippa í mömmu eða ömmu til að taka þátt í mótinu á Ljúflingi þann 19. júní,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri GO.

Að lokum hvetur Þorvaldur kylfinga landsins til þess að fylgjast vel með bestu kylfingum Evrópu í stúlknaflokki þegar Evrópumót stúlknalandsliða fer fram á Urriðavelli dagana 5.-9. júlí en nánar verður fjallað um það mót á golf.is á næstu vikum.

#elatc2016 #EM2016
Glæsilegt um að litast á Urriðavelli.
Frá Urriðavelli. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ