Logi Sigurðsson, GS, Íslandsmeistari í golfi 2023. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Logi Sigurðsson, GS, sigraði á Íslandsmótinu í golfi 2023 sem fram fór á Urriðvelli dagana 10.-13. ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem Logi fagnar þessum titli en hann er sá 41. sem fær nafn sitt á verðlaunagripinn. Fyrst var keppt um Íslandsmeistaratitilinn í karlaflokki árið 1942.

Gísli Ólafsson er fyrsti Íslandsmeistarinn og Birgir Leifur Hafþórsson er sá sigursælasti með 7 titla. Birgir Leifur landaði sínum 7. titli á Jaðarsvelli árið 2016 og hefur hann ekki tekið þátt eftir þann sigur.

Þegar nafn Loga Sigurðssonar verður grafið á verðlaunagripinn verður það 41. nafnið á verðlaunagripinn í karlaflokki, 17 kylfingar hafa sigrað oftar en einu sinni. 

Úlfar Jónsson og Björgvin Þorsteinsson hafa sigrað 6 sinnum hvor, og Magnús Guðmundsson er með 5 titla. Kylfingar úr GR hafa oftast sigrað eða 23 sinnum, GA er með 20 titla, og GK er með 13 titla. 

7 titlar:

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (1996 (GL), 2003, 2004, 2010, 2013,2014, 2016).

6 titlar: 

Björgvin Þorsteinsson, GA (1971, 1973-1977)
Úlfar Jónsson, GK (1986,1987,1989-1992)

5 titlar:

Magnús Guðmundsson, GA (1958, 1963-66).

4 titlar: 

Björgvin Sigurbergsson, GK (1995, 1999, 2000, 2007)

3 titlar:

Gísli Ólafsson, GR (1942-1944)
Þorvaldur Ásgeirsson, GR (1945, 1950-51)
Þorbjörn Kjærbo, GS (1968-1970)
Hannes Eyvindsson, GR (1978-1980)
Sigurður Pétursson, GR (1982,1984,1985)
Sigurpáll Geir Sveinsson, GA (1994, 1998, 2002)
Axel Bóasson, GK (2011, 2017,2018)

2 titlar:

Ewald Berndsen, GR (1947,1953)
Ólafur Á. Ólafsson, GR (1954,1956)
Sveinn Ársælsson, GV (1957,1959)
Gunnar Sólnes, GA (1961,1967)
Kristján Þór Einarsson, GM (2008,2022)

Íslandsmeistarar:

Sigtryggur Júlíusson, GA (1946)
Jóhannes G. Helgason, GR (1948)
Jón Egilsson, GA (1946)
Birgir Sigurðsson, GA (1952)
Hermann Ingimarsson, GA (1955)
Jóhann Eyjólfsson, GR (1960)
Óttar Yngvason, GR (1962)
Loftur Ólafsson, NK (1972)
Ragnar Ólafsson, GR (1981)
Gylfi Kristinsson, GS (1983)
Sigurður Sigurðsson, GS (1988)
Þorsteinn Hallgrímsson, GV (1983)
Þórður Emil Ólafsson, GL (1997)
Örn Ævar Hjartarson, GS (2001)
Heiðar Davíð Bragason, GKj/GM. (2001)
Sigmundur Einar Másson, GKG (2006)
Ólafur Björn Loftsson, NK (2009)
Haraldur Franklín Magnús, GR (2012)
Þórður Rafn Gissurarson, GR (2015)
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (2019)
Bjarki Pétursson, GKG (2020)
Aron Snær Júlíusson, GKG (2021)
Logi Sigurðsson, GS (2023)

Fjöldi titla hjá klúbbum:
GR – Golfklúbbur Reykjavíkur23
GA – Golfklúbbur Akureyri20
GK – Golfklúbburinn Keilir 13
GKG – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar9
GS – Golfklúbbur Suðurnesja7
GV – Golfklúbbur Vestmannaeyja3
GKj./GM – Golfklúbbur Mosfellsbæjar / Kjölur3
GL – Golfklúbburinn Leynir 2
NK – Nesklúbburinn2

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ