/

Deildu:

Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Golfsamband Íslands gaf nýverið út bæklinginn Leiðbeiningar um bættan leikhraða. Um er að ræða samstarfsverkefni með Heiðrúnu Hörpu Gestsdóttur, Vita-Golf og Iclandair Golfers. Bæklingurinn ætti að vera aðgengilegur hjá öllum golfklúbbum.

Í bæklingnum er farið yfir hvernig halda skal sem bestum leikhraða í almennum golfleik og gefnar ýmsar leiðbeiningar varðandi það hvernig flýta má leik. Leiðbeiningarnar taka mið af höggleik og punktakeppni. Töluvert hefur verið rætt um að bæta þurfi leikhraða bæði hérlendis og erlendis. Byrjendur og þeir sem eru lengra komnir ættu að geta nýtt sér ýmsa punkta í bæklingnum

Með bættum leikhraða eykst ánægjan bæði hjá kylfingum og rekstraaðilum golfvallanna. Því er það öllum í hag að hafa ýmis atriði um bættan leikhraða í huga. Fleiri gætu hugsað sér að byrja í golfi ef leikhraði er betri og stöðugri.

Screen Shot 2016-06-30 at 10.31.06 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.31.32 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.31.49 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.32.05 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.32.25 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.32.41 AM Screen Shot 2016-06-30 at 10.32.59 AM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ