Saga Traustadóttir og Gunnlaugur Árni Sveinsson.
Auglýsing

Landsmót í golfhermum 2023 hefst á næstu dögum og verður það í annað sinn sem mótið fer fram.

Fyrsta mótið heppnaðist einstaklega vel í fyrra og fylgdumst við með Gunnlaugi Árna Sveinssyni og Sögu Traustadóttur fagna Landsmeistaratitlum eftir æsispennandi lokaholur en sýnt var frá mótinu í beinni útsendingu í sjónvarpi.

Landsmótið er nýjung sem GSÍ styður við sem hluta af öðru mótahaldi sambandsins en GKG er framkvæmdaraðili mótsins.

Í fyrra var leikið á Leirdalsvelli en í ár spreyta keppendur sig á Grafarholtsvellinum.

Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt en hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar.

Fyrir neðan má sjá keppnisskilmála mótsins en mótið er opið í Trackman Virtual Golf 2 Tournaments kerfinu og geta keppendur hafið leik eftir skráningu með sínum TrackMan aðgangi í hvaða TrackMan golfhermasetri á landinu.  

Keppnisfyrirkomulag og skilmálar:

Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki.

Tvær undankeppnir fyrir Landsmótið verða haldnar, 18 holur hvor undankeppni.

Fyrri undankeppni fer fram 14. janúar 2023 til 21. febrúar og komast 48 efstu karlar og 24 efstu konur í seinni úrslitakeppnina sem haldin verður 15. febrúar til 26. mars 2023.

Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.

Hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta.

Stillingar mótsins tryggja að vallaraðstæður séu eins hvar sem leikið er.

Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komast í úrslitakeppnina, Landsmótið, sem haldið verður 2. apríl 2023 í Íþróttamiðstöð GKG.

Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram gilda seinni 9, síðan seinustu 6, loks seinustu 3 og svo 1. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.

Skor úr undankeppnum fylgja ekki yfir í úrslitakeppnina.

Leiknar eru 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.

Ef leikmenn eru að jafnir í efsta sæti skal leikinn bráðabani þangað til úrslit nást.

Ekki skal leikinn bráðabani ef jafnt er í öðrum sætum.

Vallaruppsetning í fyrri undankeppninni

Undankeppnir og úrslit fara fram á TrackMan Virtual Golf2 Grafarholtsvelli GR.

Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum.

Brautir og flatir eru stilltar á miðlungs mýkt og hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra.

Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki og bláum í kvennaflokki.

Sérregla

Í þeim tilvikum sem TrackMan bætir við höggi vegna tæknilegra orsaka (t.d. ef hermir telur högg þó um æfingasveiflu sé að ræða), þá er heimilt að velja mulligan og endurtaka höggið. Kerfið skráir að leikmaður hafi tekið mulligan, og mun mótsstjórn skoða þau tilfelli sem slíkt er valið. Ef leikmaður hefur valið mulligan án þess að hafa gilda ástæðu til þess, fær viðkomandi frávísun úr mótinu.
Mótsstjórn mun skera úr um öll tæknileg tilfelli sem koma upp meðan á leik stendur.

Þátttökuréttur og skráning

Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt.

Skráningarferill í fyrri undankeppni:

Mótið er opið í Trackman Tournaments kerfinu og geta keppendur hafið leik eftir að keppandi fer í TrackMan hermi og skráir sig inn með sínum aðgangi.

Smellt er á valmöguleikann „Tournaments“· og í framhaldi Landsmót í golfhermum – fyrri undankeppni (karla eða kvenna), og loks „Play tournament“.

Í undankeppnum greiða þátttakendur fyrir notkun á hermi þar sem það á við.
Ekkert aukagjald er tekið fyrir þátttökuna í mótinu.

Verðlaun eftir úrslitakeppni 2. apríl:
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar.
1. sæti: 100.000 kr.
2. sæti: 50.000 kr.
3. sæti: 30.000 kr.

Veitt verða verðlaun fyrir besta skor í undankeppnunum – 25.000 kr. gjafabréf.

Mótsstjórn: Úlfar Jónsson, Sigmundur Einar Másson, Brynjar Geirsson.

Hafið samband við Úlfar ulfar@gkg.is ef spurningar vakna.

Birt með fyrirvara um breytingar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ