Auglýsing

Landsmót í golfhermum fer fram víðsvegar um landið um þessar mundir. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki.

Fyrstu undankeppninni er lokið og þann 15. febrúar s.l. hófst fyrri úrslitakeppninn þar sem að 48 karlar og 24 konur taka þátt og þeirri keppni lýkur þann 14. mars 2022

Að síðari undankeppninni lokinni komast 8 efstu konurnar og 8 efstu karlarnir áfram í úrslit Landsmótsins í golfhermum 2022 sem fram fer 20. mars í íþróttamiðstöð GKG.

Hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta. Stillingar mótsins tryggja að vallaraðstæður séu eins hvar sem leikið er. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.

Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komast í úrslitakeppnina, Landsmótið, sem haldið verður 20. mars 2022 í Íþróttamiðstöð GKG. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram gilda seinni 9, síðan seinustu 6, loks seinustu 3 og svo 1. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.


Brought to you by
Brought to you by

Skor úr undankeppnum fylgja ekki yfir í úrslitakeppnina.

Leiknar eru 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.

Ef leikmenn eru að jafnir í efsta sæti skal leikinn bráðabani þangað til úrslit nást. Ekki skal leikinn bráðabani ef jafnt er í öðrum sætum.

Vallaruppsetning

Undankeppnir og úrslit fara fram á TrackMan Virtual Golf2 Leirdalsvelli GKG.

Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir og flatir eru stilltar á miðlungs mýkt og hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra.

Leikið er á teigum 59 í karlaflokki og teigum 52 í kvennaflokki.

Sérregla

Í þeim tilvikum sem TrackMan bætir við höggi vegna tæknilegra orsaka (t.d. ef hermir telur högg þó um æfingasveiflu sé að ræða), þá er heimilt að velja mulligan og endurtaka höggið. Kerfið skráir að leikmaður hafi tekið mulligan, og mun mótsstjórn skoða þau tilfelli sem slíkt er valið. Ef leikmaður hefur valið mulligan án þess að hafa gilda ástæðu til þess, fær viðkomandi frávísun úr mótinu.

Þátttökuréttur og skráning

Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt.

Skráningarferill (gildir bara vegna fyrri undankeppninnar):

Skráningu lýkur 7. febrúar.

Mótið er stofnað í Golfbox og kylfingar skrá sig þar.

Þegar leikmaður hefur skráð sig er sent boð á netfang þáttakenda sem skráð er í Golfbox. Í kjölfarið getur viðkomandi skráð sig inn í gegnum MyTrackMan aðgang í TrackMan golf appinu. Athugið að tekið getur allt að sólarhring á virkum degi, eða næsta virka dag ef skráningin er um helgi, til að fá boðið frá TrackMan.

Keppandi velur “Join tournament” og býr til MyTrackMan prófíl, ef það er ekki þegar fyrir hendi.

Keppandi fer í TrackMan hermi og skráir sig inn með sínum aðgangi.

Smellt er á valmöguleikann “Tournaments” og í framhaldi “Landsmót í golfhermum”, og loks “Play tournament”.

Í undankeppnum greiða þátttakendur fyrir notkun á hermi þar sem það á við. Ekkert aukagjald er tekið fyrir þátttökuna í mótinu.

Verðlaun:

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar.

sæti: 100.000 kr.

sæti: 50.000 kr.

sæti: 30.000 kr.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ