Úlfar Jónsson.
Auglýsing

Úlfar Jónsson tilkynnti í dag valið á landsliðum Íslands í golfi sem taka þátt á Evrópumótunum sem fram fara í byrjun júlí. Úlfar sagði að valið hefði verið erfitt enda mikil samkeppni um sæti í landsliðunum þremur sem tilkynnt voru í dag. Þau eru þannig skipuð.

Kvennalandslið:

Anna Sólveig Snorradóttir (GK), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Heiða Guðnadóttir (GM), Karen Guðnadóttir (GS), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR), Sunna Víðisdóttir (GR), Þjálfari: Björgvin Sigurbergsson. Liðsstjóri/sjúkraþjálfari: Hulda Soffía Hermannsdóttir.

Kvennalandsliðið keppir á Helsingör golfvellinum, sem er einn af þeim elstu í Danmörku. Leikið verður ýmist af fremri og aftari teigum, og er heildarlengd vallarins í mótinu 5361 metri. Mótið fer fram 7.- 11. júlí. Í mótinu keppa 21 þjóð, og verður raðað í A, B og C riðil (8, 8 og 5 þjóðir) eftir 36 holu höggleik. Þar eftir verður leikin holukeppni, þjóð gegn þjóð. Í A riðli eru leiknar tvær umferðir á dag, fjórir fjórmenningar fyrir hádegi og fimm tvímenningar eftir hádegi. Í B og C riðli er leikin ein umferð daglega, einn fjórmenningur og fjórir tvímenningar.

Heimasíða mótsins: 

Karlalandslið:

Andri Þór Björnsson (GR), Axel Bóasson (GK), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR), Kristján Þór Einarsson (GM), Rúnar Arnórsson (GK). Þjálfari: Birgir Leifur Hafþórsson. Liðsstjóri/sjúkraþjálfari: Gauti Grétarsson.

Karlalandsliðið keppir á Postolowo golfvellinum í Póllandi. Völlurinn er næst lengsti völlur Evrópu, alls 7101 metri. Mótið fer fram 8.-11. júlí. Í mótinu keppa tíu þjóðir, en þrjár efstu komast í 1. deildar keppnina á næsta ári. Leiknar eru 36 holur í höggleik og munu fjórar efstu þjóðirnar leika holukeppni, þjóð gegn þjóð, tvær umferðir á hverjum degi, fjórir fjórmenningar fyrir hádegi og fimm tvímenningar eftir hádegi.

Heimasíða mótsins: 

U18 piltalandslið:

Fannar Ingi Steingrímsson (GHG), Gísli Sveinbergsson (GK), Björn Óskar Guðjónsson (GM), Henning Darri Þórðarson (GK), Tumi Hrafn Kúld (GA), Hlynur Bergsson (GKG). Þjálfari: Úlfar Jónsson. Liðsstjóri: Ragnar Ólafsson.

Piltalandsliðið keppir á Pickala Park Course golfvellinum í Finnlandi. Völlurinn er skógarvöllur, 6651 metri að lengd. Mótið fer fram 7.-11. júlí. Í mótinu fá 16 þjóðir þátttökurétt, en eftir 36 holu höggleik leika átta efstu í A riðli og 8 þjóðir í B riðli. Þar eftir verður leikin holukeppni, þjóð gegn þjóð. Í A riðli eru leiknar tvær umferðir per dag, fjórir fjórmenningar fyrir hádegi og fimm tvímenningar eftir hádegi. Í B riðli er leikin ein umferð daglega, einn fjórmenningur og fjórir tvímenningar. Þrettán efstu þjóðirnar tryggja sér þátttökurétt í mótinu á næsta ári, en þrjár neðstu þurfa að fara í 2. deild og leika í undankeppni til að komast aftur upp.

Heimasíða mótsins:

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ