Frá Korpúlfsstaðavelli. Mynd/GR
Auglýsing

Korpubikarinn í samvinnu við Icelandair fer fram dagana 8.-10. september á Korpúlfsstaðavelli (Sjórinn/Áin). Mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ og er Golfklúbbur Reykjavíkur framkvæmdaraðili mótsins. Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 72 en skráningu lýkur kl. 23:59 þriðjudaginn 5. september.

Smelltu hér til að skrá þig:

Stigalistarnir eru hér:

Korpubikarinn í samvinnu við Icelandair – síðasta stigamót ársins í mótaröð GSÍ 2023

Korpubikarinn í samvinnu við Icelandair verður leikinn á Korpúlfsstaðavelli dagana 8. – 10. september. Mótið er það síðasta í stigamótaröð GSÍ á árinu þar sem bestu kylfingar landsins mæta til leiks og spila um Korpubikarinn.

Skráning hefst miðvikudagin 30. ágúst kl. 12:00 og má sjá allar frekari upplýsingar um mótið hér fyrir neðan.

Leikfyrirkomulag
Mótahald fer fram á Korpúlfsstaðavelli (Sjórinn/ Áin). Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót karla og kvenna og móta- og keppendareglum GSÍ. Keppt er eftir staðarreglum GSÍ ásamt viðbótarstaðarreglum Korpunnar.

Rástímar og ráshópar
​Rástímar verða birtir á golf.is eftir kl. 16:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út alla dagana frá kl. 8:00

Þátttökuréttur
Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 72. Þátttökurétt hafa bæði áhugamenn og atvinnumenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í viðurkenndum golfklúbbi.

Þátttökurétt hafa 25 efstu karlar- og konur af stigalista GSÍ, umfram það er raðað inn eftir forgjöf skv. 6. grein í reglugerð um stigamót. Ef fjöldi skráðra keppenda fer yfir hámarksfjölda ræður forgjöf kl 8:00 morgunin eftir að skráningarfresti lýkur því hverjir komast inn í hvorn flokk. Keppendum skal þó fjölgað þannig að fullir ráshópar verði í hvorum flokki. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafnlangt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða. Keppendur á biðlista þurfa að vera skráðir til leiks.

Mótsgjald
Karlaflokkur teigar 61    13.000 kr.
Kvennaflokkur teigar 51 13.000 kr.

Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar á fyrsta teig og æfingaboltar í Básum alla keppnisdaga.

Teiggjöf: Morgunmatur verður í boði alla þrjá keppnisdaga frá kl. 06:30 – 11:30.

Skráning og þátttökugjald
Skráning í mótið hefst miðvikudaginn 30. ágúst kl. 12:00. Þátttakendur skulu skrá sig í mótið í mótaskrá á Golfbox fyrir klukkan 23:59 á þriðjudegi fyrir mót, 5. september.
*Engar undantekningar á skráningu verða leyfðar í mótið eftir að skráningu lýkur.
** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun kemur eftir að skráningarfresti lýkur.
***Þeir keppendur sem ekki fá þátttöku í mótið fá endurgreitt að móti loknu.

Æfingahringur
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við Golfklúbb Reykjavíkur á netfangið harpa@grgolf.is til að panta rástíma. Reglur um æfingahringi er að finna í klúbbhúsinu. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald. Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Æfingahringir verða í boði á eftirfarandi tímum:

Þriðjudagur 6. september frá kl.10:00-12:00 & 15:00-17:00

Miðvikudagur 7. september frá kl.10:00-12:00 & 15:00-17:00

Verðlaun
Veitt verða peningaverðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda. . Veitt verða verðlaun fyrir Korpubikarinn og forseti GSÍ mætir til að krýna stigameistara GSÍ.

Gert er ráð fyrir að verðlaunaafhending hefjist 20 mínútum eftir að síðasti ráshópur lýkur leik, boðið verður upp á léttar veitingar.

Mótsstjóri: Ómar Örn Friðriksson 660-2770

Mótsstjórn: Ómar Örn Friðriksson, Harpa Ægisdóttir, Dóra Eyland, Atli Þorvaldsson og Nicholas Cathart-Jones.


ATH! Mótalýsing er birt með fyrirvara um breytingar


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ