/

Deildu:

Auglýsing

Hvernig líður hinsegin ungu fólk í íþróttum? Eru íþróttir fyrir alla? Þessum spurningum og öðrum  verður svarað fimmtudaginn 4. febrúar í Háskólanum í Reykjavík kl. 13:00 – 16:00.
Ráðstefnan er hluti af Reykjavíkurleikunum (RIG).

Vegna samkomutakmarkana verður ekki hægt að mæta í sal en ráðstefnunni verður streymt á Youtube rás leikana. 

Nánari upplýsingar og dagskrá er hægt að finna á rig.is og facebook. Streymið er opið öllum en við hvetjum alla til að skrá sig hér.

Að ráðstefnunni standa: Íþróttabandalag Reykjavíkur, íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands, Háskólinn í Reykjavík og RIG – Reykjavík International Games.

MEGIN ÁHERSLUR RÁÐSTEFNUNNAR:

  • Niðurstöður rannsóknar um viðhorf hinsegin fólks í íþróttum
  • Frístundastarf í Breiðholti – tilraunaverkefni
  • Barnvænt samfélag á Akureyri
  • Verkferlar og leiðbeiningar um kynferðislegt ofbeldi og kynferðislega áreitni í íþróttum
  • Reynslusögur íþróttafólks

FYRIRLESARAR:

Arna Sigíður Albertsdóttir, Birta Björnsdóttir, Hrafnhildur Guðjónsdóttir, Tótla I Sæmundsdóttir, Þráinn Hafsteinsson og Ingi Þór Jónsson

Boðið verður uppá beina útsendingu á Youtube rás Reykjavíkurleikanna.

Efni frá ráðstefnunni árið 2020 má finna hér, og efni frá fyrri árum hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ