Auglýsing

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fer fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst.

Leikin er útsláttarkeppni án forgjafar:

  • 1. umferð laugardagur: 16 manna holukeppni (ATH 19-21 árs flokkar spila 8 manna úrslit einnig á laugardegi)
  • 2. umferð sunnudagur: 8 manna holukeppni þeirra sem áfram komast
  • 3. umferð sunnudagur: Undanúrslit, 4 manna holukeppni þeirra sem áfram komast 
  • 4. umferð mánudagur: Úrslit, leikur um 3. sæti og úrslitaleikur

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit leikja:

Smelltu hér fyrur upplýsingar um mótið.

Röðun leikmanna í 16 manna úrslitum er samkvæmt skráningarröð þátttakenda (þátttökuréttur).

Stigahæsti leikmaður á stigamótaröð unglinga leikur við þann stigalægsta (eða leikmanninn með hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni), leikmaðurinn með næst flest stiga á stigamótaröð unglinga leikur við þann næst stigalægsta (eða leikmanninn með næst hæstu forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur ef teknir eru inn leikmenn án stiga á stigamótaröðinni) o.s.frv.

Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:

  1. Sextán stigahæstu leikmenn á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur
    út. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti
    á öðrum stigamótum ársins. Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti.
  2. Aðrir leikmenn með stig á stigamótaröð unglinga þegar skráningarfrestur rennur út.
    Röð ákvarðast af sætum á stigamótaröðinni. Séu leikmenn jafnir í sæti á stigamótaröðinni telst sá ofar sem náð hefur efra sæti á öðrum stigamótum ársins. Séu leikmenn þá enn jafnir ræður hlutkesti.
  3. Aðrir leikmenn sem uppfylla þátttökuskilyrði. Röð ákvarðast af forgjöf kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Keppt er í eftirtöldum flokkum, aldur miðast við almanaksár.

  • Stelpnaflokkur 12 ára og yngri – rauðir teigar
  • Stelpnaflokkur 13-14 ára – rauðir teigar
  • Telpnaflokkur  15-16 ára – bláir teigar
  • Stúlknaflokkur 17-18 ára – bláir teigar
  • Stúlknaflokkur 19-21 árs – bláir teigar
  • Strákaflokkur 12 ára og yngri – rauðir teigar
  • Strákaflokkur 13-14 ára – bláir teigar
  • Drengjaflokkur 15-16 ára – gulir teigar
  • Piltaflokkur 17-18 ára – hvítir teigar
  • Piltaflokkur 19-21 árs – hvítir teigar

Verði forföll fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á biðlista og þeim boðin þátttaka. Kylfingar á biðlista geta mætt á keppnisstað að morgni fyrsta keppnisdags og verið til taks ef forföll verða. Viðkomandi þurfa að gefa sig fram við afgreiðslu.

Verði forföll eftir að leikröð hefur verið auglýst skal leikmanni á biðlista boðið að taka sæti þess sem forfallaðist, en leikröð er ekki ákvörðuð að nýju.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn.

Bóka þarf æfingahringi í síma 566 6999 eða með tölvupósti á golfmos@golfmos.is

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum.

Verðlaunaafhending 

Verðlaunaafhendingin fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar, en hér eru nánari upplýsingar:
Fyrri verðlaunaafhending (U12 kk+kvk, 13-14 kk+kvk) er áætluð um kl. 13:00 (eða 15 mínútum eftir að síðasta leik lýkur í 13-14 kk).

Seinni verðlaunaafhending (15-16 kk+kvk, 17-18 kk+kvk, 19-21 kk) er áætluð um kl. 14:30 (eða 15 mínútum eftir að síðasta leik lýkur í 19-21 kk).

Hér má sjá stöðu á stigalistum.

Dómarar: Sigurður Geirsson, Davíð Baldur Sigurðsson

Mótsstjórn: Ágúst Jensson, Davíð Gunnlaugsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Brynjar Geirsson.

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ