GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 2. deild kvenna fór fram á Silfurnesvelli hjá Golfklúbbi Hornafjarðar dagana 13.-15. ágúst.

Alls tóku átta sveitir þátt:

  • Golfklúbbur Álftaness
  • Golfklúbbur Fjallabyggðar
  • Golfklúbbur Hornafjarðar
  • Golfklúbburinn Leynir
  • Nesklúbburinn
  • Golfklúbburinn Oddur
  • Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
  • Golfklúbbur Þorlákshafnar

Golfklúbburinn Oddur stóð uppi sem sigurvegari eftir 2-1 sigur gegn Nesklúbbnum í úrslitaleiknum. Oddur tryggði sér þar með sæti í 1. deild kvenna að ári.

Í undanúrslitunum vann Oddur Golfklúbb Fjallabyggðar 2-1. Fjórmenningurinn í þeirri viðureign fór alla leið á 20. holu, þar sem Oddur tryggði sér mikilvægt stig. Nesklúbburinn vann Golfklúbb Hornafjarðar 3-0 í hinum undanúrslitaleiknum.

Golfklúbbur Fjallabyggðar endaði í þriðja sæti eftir 2.5-0.5 sigur gegn Golfklúbbi Hornafjarðar í leiknum um bronsið.

Smelltu hér fyrir úrslit allra leikja í 2. deild kvenna.

Lokastaðan í 2. deild kvenna 2026

  1. Golfklúbburinn Oddur
  2. Nesklúbburinn
  3. Golfklúbbur Fjallabyggðar
  4. Golfklúbbur Hornafjarðar
  5. Golfklúbburinn Leynir
  6. Golfklúbbur Álftaness
  7. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
  8. Golfklúbbur Þorlákshafnar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ