Golfsamband Íslands

Íslandsmót golfklúbba 2023 +50 – Golfklúbburinn Keilir Íslandsmeistari í 1. deild kvenna

Íslandsmót golfklúbba í 1. deild kvenna 2023 í +50 ára og eldri fór fram á Strandarvelli á Hellu dagana 24.-26. ágúst. Alls tóku átta klúbbar þátt.

Golfklúbbur Reykjavíkur lék til undanúrslita gegn Golfklúbbi Mosfellsbæjar, þar sem að GR hafði betur. Í hinni undanúrslitaviðureigninni áttust við Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar. Þar hafði Keilir betur. Golfklúbbur Suðurnesja endaði í 8. sæti og leikur í 2. deild að ári. Keilir og GR léku til úrslita þar sem að Keilir sigraði og er GK Íslandsmeistari golfklúbba 2023 í flokki 50 ára og eldri í kvennaflokki.

Smelltu hér fyrir lokastöðu og úrslit:

Lokastaðan:

1. Golfklúbburinn Keilir.
2. Golfklúbbur Reykjavíkur.
3. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar.
4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar.
5. Nesklúbburinn.
6. Golfklúbburinn Oddur.
7. Golfklúbburinn Leynir.
8. Golfklúbbur Suðurnesja.

Íslandsmót golfklúbba – 50+ 1. deild kvennaUpplýsingarHella
Íslandsmót golfklúbba – 50+ 2. deild kvennaUpplýsingarHornafjörður
Íslandsmót golfklúbba – 50+ 1. deild karlaUpplýsingarSuðurnes
Íslandsmót golfklúbba – 50+ 2. deild karlaUpplýsingarSandgerði
Íslandsmót golfklúbba – 50+ 3. deild karlaUpplýsingarSelfoss/Hveragerði
Íslandsmót golfklúbba – 50+ 4. deild karlaUpplýsingarHellishólar
<strong>Golfklúbbur Reykjavíkur <strong>
<strong>Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar<strong>
<strong>Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar<strong>
Exit mobile version