GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Jóhannes Guðmundsson, GR, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, stóðu uppi sem sigurvegarar í Hvaleyrarbikar Golfklúbbsins Keilis. Þetta var þriðja mótið á GSÍ mótaröðinni í sumar og er mótaröðin því hálfnuð.

Leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar. Niðurskurður var eftir annan keppnisdag þannig að einungis efstu 70% af kylfingum héldu áfram leik.

Fyrsti keppnisdagur

Aðstæður voru góðar á fyrsta keppnisdegi. Golfklúbburinn Keilir, sem heldur mótið, hefur séð til þess að völlurinn sé í sem bestu standi. Alls mættu 96 kylfingar til leiks, 72 karlar og 24 konur, en það var hámarksfjöldi keppenda.

Í karlaflokki var það atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús sem lék best, en hann lauk leik á 68 höggum, þremur undir pari. Enginn fékk fleiri fugla en Haraldur og enginn fékk færri skolla á fyrsta hringnum. Góð spilamennska en á eftir honum er þó þéttur pakki kylfinga sem munu sækjast eftir titlinum um helgina. Aron Emil Gunnarsson, Logi Sigurðsson og Elvar Már Kristinsson eru höggi á eftir Haraldi. Fjórir kylfingar léku á einum undir pari.

Í kvennaflokki eru það Elsa Maren og Heiðrún Anna sem leiða mótið eftir hringi upp á 72 högg. Enginn keppandi í mótinu fékk fleiri pör í dag en Elsa, sem nældi sér í 15 stykki. Stöðugt golf. Heiðrún Anna leitar að sínum öðrum sigri á mótaröðinni, en hún sigraði á Vormóti GÞ í síðustu viku. Eva Kristinsdóttir er í þriðja sæti á sjö höggum yfir pari. Stutt er á milli kylfinga og eru margar með raunhæfan möguleika á verðlaunum.

Annar keppnisdagur

Sigurður Bjarki Blumenstein er efstur í karlaflokki þegar 18 holur eru eftir. Hann lék fyrri hring sinn á 70 höggum og kom inn á 69 höggum í dag eftir öflugan hring. Sigurður er með besta meðalskor keppenda á bæði par 4 og par 5 holum í mótinu. Hann er einn af átta kylfingum mótsins sem hafa fengið örn, en hann nældi sér í einn svoleiðis eftir vel spilaða 7. holu í dag. Hörku spilamennska hjá Sigurði, sem er í góðri stöðu til að vinna aðra helgina í röð

Jóhannes Guðmundsson lék best allra keppenda í dag, en hann lauk leik á 68 höggum og situr í 2. sæti mótsins. Jóhannes er með flesta fugla allra eftir tvo hringi, eða níu talsins.

Meðalskorið í karlaflokki hækkaði um 1.5 högg á milli daga, og var rúm 78 högg í dag.

Heiðrún Anna er með tveggja högga forystu á Elsu Maren eftir hring upp á 74 högg í dag. Heiðrún heldur áfram góðu gengi eftir sigur í Vormóti GÞ í síðustu viku. Heiðrún hefur nú leikið fjóra hringi á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili og hefur enn engin komið inn á betra skori en hún.

Mikið var um góð skor í kvennaflokknum í dag og var meðalskor dagsins tæpum fjórum höggum lægra en í gær, eða 78.6 högg. Guðrún Birna Snæþórsdóttir og Una Karen Guðmundsdóttir léku, líkt og Heiðrún, á 74 höggum í dag og klifruðu upp stöðutöfluna.

Elsa Maren hélt einnig áfram öflugri spilamennsku sinni og lauk leik á 76 höggum í dag. Frá 3. sætinu er mjög stutt á milli kylfinga og verður spennandi að fylgjast með hvernig leikar þróast á morgun

Úrslit karla

Í karlaflokki stóð Jóhannes Guðmundsson, GR, uppi sem sigurvegari eftir sigur í bráðabana. Jóhannes lék mótið heilt yfir vel og fékk flesta fugla allra kylfinga mótsins, eða tólf talsins. Eftir að hafa komið sér í vandræði á tólftu og þrettándu holu síðasta hringsins sýndi Jóhannes mikil gæði. Eftir fugl á fjórtándu holu setti hann langt pútt niður fyrir pari á þeirri fimmtándu og endaði jafn atvinnukylfingnum Guðmundi Ágústi Kristjánssyni í efsta sæti.

Guðmundur lék síðasta hringinn best allra, á 69 höggum. Hringur Guðmundar hafði verið rólegur þar til hann kom á þrettándu holuna. Þaðan lék hann síðustu sex holurnar á þremur undir pari og flaug upp stöðutöfluna. Guðmundur lék fæstar holur yfir pari af öllum keppendum mótsins, alls 8 holur.

Í bráðabananum var 15. holan leikin aftur, og sigraði Jóhannes holuna á þægilegu pari. Þetta er fyrsti sigur Jóa á mótaröðinni og óskum við honum til hamingju.

Veigar Heiðarsson, kylfingur GA, varð þriðji í mótinu. Veigar endaði höggi á eftir Jóhannesi og Guðmundi. Eftir erfiðar upphafsholur í mótinu spilaði Veigar flott og öruggt golf. Hann var einn af fjórum kylfingum mótsins sem lék bæði par 4 og par 5 holurnar undir pari.

Það má með sanni segja að kylfingar úr GR hafi leikið vel í mótinu, en fimm af efstu sex, og sjö af efstu tíu í karlaflokki koma úr Golfklúbbi Reykjavíkur.

Jóhannes með bikarinn
SætiKylfingurKlúbburAð pari
1Jóhannes GuðmundssonGRE
2Guðmundur Ágúst KristjánssonGRE
3Veigar HeiðarssonGA+1
4Sigurður Bjarki BlumensteinGR+2
T5Tómas Eiríksson HjaltestedGR+4
T5Haraldur Franklín MagnúsGR+4
7Kristófer Orri ÞórðarsonGKG+6

Úrslit kvenna

Í kvennaflokki sigraði Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, aðra helgina í röð. Heiðrún lék síðasta hringinn á 70 höggum, einum undir pari, sem reyndist besti hringur mótsins í kvennaflokki. Eftir sex pör á fyrstu sex holunum fékk Heiðrún þrjá fugla í röð, og bætti þeim fjórða við á tólftu holu. Stöðugt golf og gott skor á par 3 holunum einkenndi bæði spilamennsku Heiðrúnar og Elsu, sem varð önnur. Heiðrún lék par 3 holurnar best af öllum kylfingum mótsins, en Elsa Maren var næstbest. Þá voru þær jafnar með flest pör allra kylfinga mótsins, alls 37 talsins.

Það var hart barist um sigurinn í kvennaflokki, en fimm högga munur á holum níu til þrettán á síðasta keppnisdegi var það sem skildi þær að.

Mjög góð spilamennska og var gaman að fylgjast með.

Í þriðja sæti var Eva Kristinsdóttir, GM. Hún lék hringi sína á 78-77-73 höggum og var í baráttunni um verðlaunasæti frá fyrsta hring.

Hring dagsins átti þó líklega Þóra Sigríður Sveinsdóttir, kylfingur GR. Eftir par á fyrstu braut fór hún holu í höggi á þeirri næstu. Kúlan lenti einu sinni á flötinni og fór svo beint í holu. Hún er fyrsti kylfingurinn til að fara holu í höggi á 2. holu Hvaleyrarvallar. Eftir afrekið fékk Þóra einnig örn á 7. holu var því fjóra undir pari á tímabili! Þóra lauk leik á 73 höggum og í fjórða sæti mótsins.

Eva Heiðrún og Elsa
SætiKylfingurKlúbburAð pari
1Heiðrún Anna HlynsdóttirGOS+3
2Elsa Maren SteinarsdóttirGR+8
3Eva KristinsdóttirGM+15
4Þóra Sigríður SveinsdóttirGR+17
T5Berglind Erla BaldursdóttirGM+21
T5Ragnhildur SigurðardóttirGR+21
7Sara KristinsdóttirGM+23

Næstu mót GSÍ mótaraðarinnar eru Íslandsmót karla og kvenna í holukeppni. Íslandsmót kvenna fer fram 13.-15. júní á Urriðavelli, en Íslandsmót karla fer fram 21.-23. júní á Hlíðavelli.

Tölfræði

Í karlaflokki voru 72 keppendur. Lægsta forgjöfin var +6.1 en sú hæsta 1.7. 22 kylfingar voru með +2 eða lægra í forgjöf.

Í karlaflokki mátti finna atvinnukylfingana Harald Franklín Magnús og Guðmund Ágúst Kristjánsson, fyrrum Íslandsmeistarana Axel Bóasson og Kristján Þór Einarsson, ásamt efsta manni stigalistans Tómasi Eiríkssyni Hjaltested.

Í kvennaflokki mættu báðir sigurvegarar Vormótanna, Berglind Erla Baldursdóttir og Heiðrún Anna Hlynsdóttir til leiks. Þar að auki bættust við margir kylfingar af Unglingamótaröðinni sem ekki tóku þátt í Vormótunum. Ragnhildur Sigurðardóttir, margfaldur Íslandsmeistari í golfi, var einnig á meðal keppenda.

Í kvennaflokki voru 24 keppendur. Lægsta forgjöfin var +2.4 og sú hæsta 5.5. Lægstu fimm forgjafirnar í kvennaflokki eru allar 0.0 eða lægra.

Bikarinn hannaður í Japan

Keppt er um Hval­eyr­ar­bik­ar­ana eins og nafn mótsins gefur til kynna. Verðlauna­grip­ur­inn á sér nokkra sögu og óvenjulega. Er hann einn af elstu bik­ur­un­um í safn­inu hjá golf­klúbbn­um Keili. Var bik­ar­inn gef­inn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eft­ir að klúbbur­inn var stofnaður. Var keppt um bik­ar­inn á opnu móti hjá Keili sem haldið var í nokk­ur ár.

Bik­ar­inn er veg­leg­ur og frem­ur óvenju­leg­ur í út­liti. Var hann hannaður og sér­smíðaður í listagalle­rí í Jap­an á sín­um tíma. Þegar stiga­mót­inu Hval­eyr­ar­bik­arn­um var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað ein­tak enda keppt í tveim­ur flokk­um í Hval­eyr­ar­bik­arn­um. Var bik­ar­inn send­ur til Kína með það fyr­ir aug­um að búa til eft­ir­lík­ingu en Kín­verj­arn­ir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólm­inn var komið.

Höfðu Keil­is­menn þá upp á listagalle­rí­inu í Jap­an og var þar smíðaður ann­ar bik­ar sem gef­inn var af Icewe­ar. Þá þurfti raun­ar einnig að gera lít­il­lega við bik­ar­inn sem hafði skemmst á heim­leiðinni frá Jap­an. Bik­ar­inn hef­ur því farið nokkr­ar ferðir á milli Íslands og Asíu.

Mikilvæg stig á stigalista GSÍ

Hvaleyrarbikarinn er þriðja mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ