GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Í síðustu viku lauk héraðsdómaranámskeiði GSÍ fyrir árið 2026.

Námskeiðið var haldið á netinu þar sem 139 þátttakendur voru skráðir.

Fyrir þau sem vildu var boðið upp á próf til að öðlast réttindi héraðsdómara. Alls tóku 60 prófið, þar sem 52 stóðust prófið og fengu héraðsdómararéttindin.

Námskeiðið í ár var haldið í formi fyrirlestra í fjarfundi, en milli 30 og 40 sóttu erindin “í beinni” þegar mest var. Mörg skoðuðu upptökur fyrirlestranna á þeim tíma sem þeim hentaði best, áhorf á upptökur voru frá 153 upp í 267. Allir fyrirlestrar voru teknir upp og gerðir aðgengilegir öllum skráðum þátttakendum.

Þessi námskeið eru haldin árlega af dómaranefnd GSÍ og henta bæði byrjendum og lengra komnum til að læra golfreglunar. Engin krafa er gerð um próftöku þegar námskeiðin eru sótt. Þá fylgir ekki heldur dómgæsluskylda þótt þátttakendur standist prófið, nema ætlunin sé að halda réttindum við, þá þarf að dæma og skila inn skýrslum árlega til dómaranefndar.

Dómaranefnd vill þakka öllum sem tóku þátt í þessum námskeiðum í ár og vonast til þess að sjá sem flest á næsta ári.

[table “” not found /]



Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ