/

Deildu:

Dómaranámskeið
Auglýsing

Haustfundur golfdómara verður haldinn í sal D í Íþróttamiðstöðinni í Laugardag þriðjudaginn, 7. október, kl. 19:30.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Tímavarsla á Eimskipsmótaröðinni í sumar.
  2. Atvik í dómgæslu í sumar.
  3. Reglur um aðkomuvatn.
  4. Atvik í móti á Evrópumótaröðinni fyrr á árinu.
  5. Önnur mál.

Við vonumst til að sem flestir dómarar mæti, fræðist og taki þátt í uppbyggilegum umræðum.

Við viljum nota tækifærið og minna dómara á að fylla út starfsskýrslur sínar eftir sumarið. Þeir sem mæta á haustfundinn bæta honum svo auðvitað á skýrsluna. Skila þarf starfsskýrslunni fyrir 15. desember nk., en ef fyrirsjáanlegt er að þið munið ekki sinna frekari verkefnum tengdum golfreglunum á árinu er sjálfsagt að senda skýrsluna sem fyrst.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ