Auglýsing

Haraldur Franklín Magnús hefur leikið fjóra keppnishringi á lokaúrtökumótinu fyrir DP World atvinnumótaröðina í karlaflokki – en mótaröðin er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

GR-ingurinn er í 53. sæti á 6 höggum undir pari (66-69-74-71) og framundan eru tveir hringir til viðbótar þar sem að 25 efstu tryggja sér keppnisrétt á DP World Tour á næsta tímabili. Ef keppendur eru jafnir í 25. sætinu þá komast þeir áfram.

Með því að komast í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu tryggði Haraldur Franklín sér keppnisrétt á flestum mótum á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða Evrópu.

Haraldur Franklín, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru allir með keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili.

Á næstu tveimur dögum er að miklu að keppa fyrir Harald Franklín þar sem hann er aðeins fjórum höggum frá 25. sætinu.

Smelltu hér fyrir stöðuna á lokaúrtökumótinu á DP World Tour.

Skorið er uppfært á þriggja holu fresti.

Haraldur Franklín og Thomas Strandemo halda samstarfi sínu áfram í þessu móti – en þeir voru saman í skólaliði Louisiana í Bandaríkjunum. Strandemo var kylfuberi fyrir Harald á 2. stigi úrtökumótsins.

Keppnisvellirnir eru á Infinitum golfsvæðinu á Spáni en borgirnar Tarragona og Salou.

Haraldur Franklín er sjötti kylfingurinn frá Íslandi sem kemst inn á lokaúrtökumótið á DP World Tour. Tveir íslenskir kylfingar frá Íslandi hafa tryggt sér keppnisrétt á DP World Tour á lokaúrtökumótinu – Birgr Leifur Hafþórsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson.

Í viðtali við RÚV segir Haraldur Franklín að það sé mikið í húfi á þessu móti.

„Ég hef aldrei spilað í lokastiginu áður, þannig að væntingarnar eru bara að halda einbeitingu og einblína bara á sjálfan mig. Það eru mjög margir með í þessu móti og get ekkert verið að pæla í því hvað hinir eru að gera. Ég hef íslenskan sjúkraþjálfara með mér sem kom sérstaklega í þetta mót og það hjálpar mikið. Þetta er mikil keyrsla og bara spennandi.“

Nánar á vef RÚV.

Birgir Leifur hefur oftast leikið á lokaúrtökumótinu eða alls 13 sinnum en hann tók 20. sinnum þátt á úrtökumótinu fyrir DP World Tour.

Eftirtaldir hafa komist inn á lokaúrtökumótið og í sviganum er fjöldi skipta á lokamótinu:

Birgir Leifur Hafþórsson (13), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (2), Bjarki Pétursson (2), Andri Þór Björnsson (1), Haraldur Franklín Magnús (1),Björgvin Sigurbergsson (1).

Haraldur Franklín endaði í 7. sæti á 2. stigi úrtökumótsins á Fontanals vellinum við borgina Girona á Spáni. Hann lék frábærlega á tveimur síðustu hringjunum og lék samtals á 7 höggum undir pari vallar. Hann endaði mótið með því að fá örn á lokaholunni – þar sem hann setti boltann ofaní af 122 metra færi.

Þetta er í fyrsta sinn sem Haraldur Franklín kemst inn á lokaúrtökumótið á DP World Tour en þetta var í sjötta sinn sem hann reynir fyrir sér á úrtökumótinu fyrir DP World Tour. Hann hefur ávallt komist inn á 2. stig úrtökumótsins og í ár gerði hann enn betur og komst inn á lokaúrtökumótið.

Haraldur Franklín lék á Challenge Tour mótaröðinni á þessu tímabili en hann náði ekki að komast í hóp 45 efstu á stigalistanum – sem hefði tryggt sæti á lokamótinu þar sem að keppt erum 20 sæti á DP World Tour. Haraldur Franklín er að keppa í sjötta sinn á úrtökumótinu fyrir DP World Tour. Hann fór í gegnum 1. stig úrtökumótsins í október. Haraldur hefur ávallt komist í gegnum 1. stig úrtökumótins þegar hann hefur leikið á því.

Árangur Haralds Franklíns er eftirfarandi á úrtökumótinu fyrir DP World Tour:

2016: Féll úr leik á 2. stigi.
2017: Féll úr leik á 2. stigi.
2018: Féll úr leik á 2. stigi.
2019: Féll úr leik á 2. stigi.
2020: Ekki keppt vegna Covid.
2021: Ekki keppt vegna Covid.
2022: Féll úr leik á 2. stigi.
2023: Komst inn á 3. stigið – lokaúrtökumótið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ